Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 23. maí 2018 15:58
Magnús Már Einarsson
Iniesta á leið í japönsku deildina
Iniesta kvaddi Barcelona um helgina.
Iniesta kvaddi Barcelona um helgina.
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta er við það að ganga frá samningi við Vissel Kobe í úrvalsdeildinni í Japan.

Iniesta flaug til Japan í dag og verður kynntur sem leikmaður Vissel Kobe á morgun samkvæmt fréttum í spænksum fjölmiðlum í dag.

Iniesta kvaddi Barcelona á sunnudaginn eftir glæstan sextán ára feril hjá félaginu.

Vissel Kobe er í 7. sæti í japönsku deildinni í dag en liðið hefur aldrei áður orðið meistari þar í landi.

Á meðal leikmanna Vissel Kobe er fyrrum þýski landsliðsmaðurinn Lukas Podolski en hann og Iniesta eiga að reyna að hjálpa liðinu upp metorðastigann.
Athugasemdir
banner
banner