Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 24. maí 2018 22:07
Ívan Guðjón Baldursson
Gulli Jóns: Byrjuðum ekki seinni hálfleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. tapaði á heimavelli gegn HK í Inkasso-deildinni fyrr í kvöld. Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Þróttar, var ekki sáttur með frammistöðuna.

Þróttur átti góðan fyrri hálfleik og var óverðskuldað undir, en gestirnir frá Kópavogi voru betri í þeim síðari.

„Mér fannst seinni hálfleikurinn fara með leikinn. Við byrjum hann hreinlega ekki, þeir ganga á lagið og komast í 2-0," sagði Gulli að leikslokum.

„Það var jafnvægi í leiknum í fyrri hálfleik. Við vorum að skapa okkur ágætis stöður og áttum dauðafæri í lok fyrri hálfleiks. Við náðum einhvern veginn aldrei takti í byrjun seinni hálfleiks, þeir ganga á lagið og eru bara sterkari á öllum vígstöðum.

„Ég varð fyrir vonbrigðum með síðari hálfleikinn. Við erum að gefa of ódýr mörk gegn þetta sterku liði.

„Það var lítið að virka í sóknarleiknum í síðari hálfleik og við þurfum að finna einhverjar lausnir á því. Við þurfum að skoða andleysið í síðari hálfleik."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner