Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 25. maí 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Fred hefur heyrt af tilboði frá Manchester United
Mynd: Getty Images
Brasilíski landsliðsmaðurinn Fred gæti verið á leið til Manchester United en hann segist hafa heyrt að félagið hafi lagt fram tilboð í sig.

Fred er á mála hjá Shakhtar Donetsk en United er að vinna í því að fá hann í sínar raðir. Manchester City sýndi Fred áhuga en nú er líklegra að hann endi hjá United.

„Viðræður við City voru í gangi í janúar. Fljótlega eftir það ræddu bæði City og United við Shakhtar og umboðsmenn mína," sagði Fred á fréttamannafundi í dag.

„Núna, ef ég er ekki að misskilja, þá hafa komið fréttir af mjög öflugu tilboði frá United."

Fred er 25 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður en hann hefur verið hjá Shakhtar síðan árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner