Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 25. maí 2018 22:59
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
2. deild kvenna: Grótta sigraði Einherja í miklum markaleik
Grótta sigraði Einherja.
Grótta sigraði Einherja.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Grótta 5-4 Einherji
0-1 Aubri Lucille Williamson ('17)
1-1 Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir ('19)
1-2 Barbara Kopacsi ('54)
1-3 Aubri Lucille Williamson ('61)
2-3 Tinna Jónsdóttir ('61)
3-3 Eydís Lilja Eysteinsdóttir ('67)
4-3 Eydís Lilja Eysteinsdóttir ('87)
4-4 Aubri Lucille Williamson ('88)
5-4 Tinna Jónsdóttir ('90)

Grótta og Einherji mættust í eina leik dagsins í 2. deild kvenna en þar var mikið skorað en lokatölur voru, 5-4 sigur Gróttu.

Í fyrri hálfleik voru aðeins skoruð tvö mörk, Aubri Lucille Williamson skoraði annað þeirra fyrir Einherja og Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir skoraði hitt markið fyrir Gróttu.

Í seinni hálfleik fór að færast enn meira fjör í leikinn og Barbara Kopacsi kom gestunum í 1-2 á 54. mínútu, Aubri Lucille Williamson skoraði annað markið sitt og þriðja mark Einherja á 61. mínútu.

Tinna Jónsdóttir minnkaði muninn í 2-3 stuttu eftir þriðja mark Aubri. Eydís Lilja Eysteinsdóttir skoraði svo tvö mörk fyrir Gróttu og kom þeim í 4-3, Aubri Lucille Williamson jafnaði metin stuttu eftir að heimakonur komust yfir. Tinna Jónsdóttir reyndist svo hetja Gróttu þegar hún skoraði sigurmark leiksins á 90. mínútu.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner