Watford er sagt hafa áhuga á því að kaupa Gerard Deulofeu frá Barcelona en hann á eitt ár eftir af samningi sínum þar.
Deulofeu kom til Watford á láni frá Barcelona í janúar og náði greinilega að heilla knattspyrnustjóra Watford og aðra hjá félaginu en Deulofeu er sagður áhugasamur um að leika áfram í ensku úrvalsdeildinni í stað þess að fara aftur til Spánar.
Þessi 24 ára gamli Spánverji kemur úr akademíu Barcelona en Katalóníufélagið er sagt tilbúið að selja hann.
Deulofeu þekkir ensku úrvalsdeildina nokkuð vel því hann var samningsbundinn Everton á árunum 2015 til 2017 áður en Barcelona keypti hann aftur.
Athugasemdir