Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 26. maí 2018 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Steve Bruce um Aston Villa: Kröfurnar hérna eru miklar
Bruce vann umspilið með Hull City árið 2016.
Bruce vann umspilið með Hull City árið 2016.
Mynd: Getty Images
Það er stórleikur framundan á Wembley í dag og þar verður heldur mikið betur undir því í boði er fyrir sigurliðið sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Liðin sem mætast í dag eru Aston Villa og Fulham. Steve Bruce er knattspyrnustjóri Aston Villa, hann segist njóta þess að starfa hjá félaginu.

„Kröfurnar hérna eru miklar en það er ein af ástæðunum sem gerir starfið svona skemmtilegt."

„Ég hef notið þess mjög að starfa hérna í þessa 19 mánuði, og þetta er stóra tækifærið sem við erum búnir að bíða eftir því að fá," sagði Bruce um úrslitaleikinn sem hefst klukkan 16:00.
Athugasemdir
banner
banner