Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. maí 2018 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Loka fimm lestarstöðvum í Kiev vegna sprengjuhótana
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Fimm lestarstöðvum hefur verið lokað í Kænugarði vegna nafnlausra sprengjuhótana. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram þar í kvöld.

Lögreglan rýmdi lestarstöðvarnar við Dnipro, Hydropark, Livoberezhna, Arsenalna og Heroiv Dnipra. Sérsveitin leitar nú að sprengjum og verða stöðvarnar opnaðar aftur sem fyrst.

Lögreglan í Kiev hefur haft nóg að gera undanfarna daga. Það hafa minnst tvær úkraínskar bullur verið handteknar eftir árás á stuðningsmenn Liverpool.

Lítið hefur spurst um ferðir stuðningsmanna Real Madrid, en þúsund skiluðu miðunum sínum vegna skyndilegra verðhækkana á gistingum.
Athugasemdir
banner
banner