Guðlaugur Victor Pálsson verður í eldlínunni í dag þegar lokaleikurinn í svissneska boltanum þessa leiktíðina verður leikinn í Bern í Sviss í hádeginu í dag.
Zürich mætir svissnesku meisturunum í Young Boys í úrslitaleik í svissneska bikarnum.
Vinnur Young Boys tvöfalt eða nær Zürich, sem lenti í fjórða sæti deildarinnar, að koma á óvart?
Guðlaugur Victor hefur verið fyrirliði Zürich á tímabilinu og hann fær því að taka á móti bikarnum ef Zürich vinnur.

Leikurinn hefst á slaginu 12:00 og mun Fótbolti.net greina frá úrslitum að honum loknum.
Athugasemdir