Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. maí 2018 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu hreint út sagt magnað mark Gareth Bale
Bale tók hjólhestaspyrnu.
Bale tók hjólhestaspyrnu.
Mynd: Getty Images
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í Kænugarði hefur verið rosalegur. Mjög mikið hefur gerst, sérstaklega í síðari hálfleiknum.

Real Madrid komst yfir eftir hræðileg mistök Loris Karius í marki Liverpool. En Liverpool var ekki lengi að kvitta fyrir sig og jafna.

Eftir jöfnunarmark Liverpool var Gareth Bale settur inn á. Bale var aðeins búinn að vera inn á í þrjár mínútur þegar hann var búinn að skora stórkostlegt mark.

Sending frá Marcelo rataði inn á títtnefndan Bale sem ákvað að taka hjólhestaspyrnu. Spyrna Bale rataði í netið.

Hreint út sagt magnað mark hjá Bale sem lengi verður talað um.

Smelltu hér til að sjá markið ótrúlega hjá Walesverjanum.

Staðan er 2-1 fyrir Real Madrid þegar um 20 mínútur eru eftir.





Athugasemdir
banner
banner