Heimild: Talksport
Markvörðurinn Loris Karius var niðurbrotinn eftir tap Liverpool gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. „Ég tapaði leiknum fyrir liðið mitt," sagði Karius við Talksport að leik loknum.
Karius gerði tvö skelfileg mistök, í fyrsta marki Real og í þriðja markinu, mistök sem eiga ekki að sjást í Meistaraflokksfótbolta, hvað þá á þessu stigi, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
„Ég finn til með öllum, liðinu, félaginu, öllum. Mistök mín reyndust okkur dýrkeypt. Ef ég gæti farið til baka í tímann, þá myndi ég gera það," sagði þýski markvörðurinn.

„Ég veit að ég brást liðinu mínu í dag."
Það er spurning hvort Karius verði áfram hjá Liverpool á næstu leiktíð. Miðað við frammistöðu hans í kvöld verður Liverpool að finna sér annan markvörð fyrir næstu leiktíð.
Sjá einnig:
„Hann er ekki að fara að spila fleiri leiki fyrir Liverpool"
Athugasemdir