Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. maí 2018 06:30
Gunnar Logi Gylfason
Ráðning Ancelotti líkt við kaup á Ronaldo eða Messi
Ancelotti er tekinn við Napoli.
Ancelotti er tekinn við Napoli.
Mynd: Getty Images
Demetrio Albertini, fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, segir að ráðning Carlo Ancelotti til Napoli sé eins og ef lið fengju til sín annaðhvort Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.

„Hann mun koma inn með jafnvægi sem er þarft í borg sem fer oft fram úr sér. Napoli tapaði titlinum því það vantaði jafnvægi."

„Napoli voru aldrei ólíklegri en Juventus en þeir töpuðu stigum í baráttunni sem reynast mikilvæg þegar uppi er staðið."

Ancelotti hefur stjórnað liðum eins og AC Milan, Real Madrid, Chelsea, Bayern Munich og Paris Saint-Germain og hefur unnið ensku, þýsku, frönsku og ítölsku deildina auk þess að eiga þrjá Meistaradeildartitla auk annarra titla.
Athugasemdir
banner
banner