Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. maí 2018 12:00
Ingólfur Stefánsson
Ramos sendir batakveðjur á Salah
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos varnarmaður Real Madrid tók sér pásu frá fagnaðarlátunum eftir sigur liðsins í Meistaradeild Evrópu í gær og sendi skilaboð til Mo Salah á samfélagsmiðlum.

Salah þurfti að yfirgefa völlinn í úrslitaleiknum eftir hálftímaleik eftir baráttu við Sergio Ramos. Stuðningsmenn Liverpool voru mjög ósáttir við Ramos eftir atvikið en myndband af því má sjá hér.

Ramos sendi skilaboð til Salah á Twitter eftir leikinn. „Stundum sýnir fótboltinn þér sínar góðu hliðar og stundum þær slæmu. Það mikilvægasta er að við erum allir atvinnumenn. Láttu þér batna Salah."

Í fyrstu var óttast að Salah myndi missa af HM í Rússlandi vegna meiðslanna en ítilkynningu frá Egypska knattspyrnusambandinu í morgun segir að þar á bæ séu menn bjartsýnir.




Athugasemdir
banner
banner
banner