Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. maí 2018 12:30
Ingólfur Stefánsson
Aron Einar æfði með bolta í morgun
Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, er byrjaður að æfa með fótbolta.

Aron setti inn myndband á Instagram síðu sinni í morgun þar sem hann röltir út á æfingasvæði í Katar með sjúkraþjálfara sínum Tomi Jagarinec.

Tomi heldur á fótbolta í myndbandinu og Aron spyr hann:
„Tomi hvað ertu með þarna, fótbolta?“

Aron Einar er staddur í Katar þar sem hann sinnir endurhæfingu eftir aðgerð sem hann gekkst undir í lok síðasta mánaðar.

Áætlað er að Aron komi til Íslands í vikunni og taki þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir æfingaleiki gegn Noregi og Gana.

Ísland hefur leik á HM í Rússlandi eftir 20 daga, þann 16. júní, þegar liðið mætir Argentínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner