Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 27. maí 2018 12:22
Ingólfur Stefánsson
Leik Keflavíkur og ÍBV seinkað um hálftíma
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Fallbaráttuslagur ÍBV og Keflavíkur í Pepsi deild karla mun fara fram klukkan 16:30 í dag en upphaflega átti hann að fara fram klukkan 16.

Leiknum seinkar vegna samgöngutruflanna á leið Eyjamanna til Keflavíkur.

Liðin eru í 11. og 12. sæti deildarinnar með 2 stig eftir fyrstu fimm leikina og því er um að ræða gífurlega mikilvægan leik fyrir bæði lið.

Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson spáir í leiki 6. umferðar í Pepsi-deildinni hér á Fótbolta.net. Hann spáir steindauðu 0-0 jafntefli í Keflavík í dag.
Athugasemdir
banner
banner