Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, var að vonum ánægður eftir 2-0 sigur sinna manna gegn KA á Alvogenvellinum í dag.
„Ég er bara hrikalega ánægður. Það gott að vinna og halda hreinu og leikurinn var bara fínn miðað við aðstæður. Fyrri hálfleikurinn var ekkert spes á að horfa enn við skorum svo tvö mörk og sigurinn var verðskuldaður." sagði Óskar Örn eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 2 - 0 KA
Þetta var annar sigur KR á tímabilinu en fyrir þennan leik höfðu þeir gert þrjú jafntefli í röð. Óskar er ánægður með stigasöfnunina hjá sínum mönnum.
„Stigasöfnunin hefur verið ágæt miðað við allt og allt. Við erum sáttir með þrjú stig í dag og eins og þetta hefur spilast er stutt upp þannig að við erum ánægðir."
KR mætir Breiðablik í bikarnum næstkomandi miðvikudag og mæta svo ÍBV í Vestmannaeyjum sunnudaginn eftir. Óskar er spenntur fyrir komandi leikjaprógrammi.
„Mér lýst vel á framhaldið. Það er bara bikarinn næst og það er alltaf gaman að spila marga leiki." sagði Óskar að lokum.
Athugasemdir