Íslenski landsliðsmaðurinn Diego Jóhannesson lék allar 90 mínútúrnar fyrir Real Oviedo sem tapaði fyrir Cultural Leonesa í spænsku B-deildinni á þessu sunnudagskvöldi.
Diego lék í hægri vængbakverði hjá Oviedo.
Diego lék í hægri vængbakverði hjá Oviedo.
Þetta var alvöru tækifæri fyrir Oviedo að komast í umspilssæti, en allt kom fyrir ekki og tapaði liðið 2-0. Bæði mörk Leonesa komu í uppbótartíma. Fyrra markið kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks og það seinna í uppbótartíma síðari hálfleiks.
Real Oviedo er í níunda sæti fyrir lokaumferðina, tveimur stigum frá umspilssæti, en þess má geta að Leonesa er í 18. sæti. Oviedo þarf að vinna sinn leik og treysta á önnur úrslit í lokaumferðinni til að komast upp í umspilssæti. Liðin í þriðja til sjötta sæti fara í umspil en efstu tvö liðin fara beint upp.
Ljóst er hvaða lið enda í efstu tveimur sætunum, en það eru Rayo Vallecano og Huesca.
Diego á þrjá landsleiki fyrir Ísland, en hann er ekki að fara á HM.
Athugasemdir