Nígería er í riðli með okkur Íslendingum á HM í sumar en landsliðstreyja og klæðnaður liðsins fyrir mótið hefur rækilega slegið í gegn.
Nike hannaði og framleiddi fatnaðinn sem er heldur betur í „retro" stíl.
Nike hannaði og framleiddi fatnaðinn sem er heldur betur í „retro" stíl.
Annað kvöld mun Nígería leika sinn fyrsta landsleik í nýju treyjunni, vináttuleik gegn Englandi á Wembley.
Það er mikill fjöldi Nígeríumanna og fólks með nígerískan uppruna sem á heima í London og voru langar raðir fyrir utan íþróttavöruverslanir borgarinnar í dag.
The queue at Nike Town right now is a madness for the new Nigeria kit. 😂 pic.twitter.com/1u9nKwniyF
— Samar Khan (@Samar7) June 1, 2018
Athugasemdir