5. umferðinni í Inkasso-deildinni lauk í gær. ÍA lagði Fram 1-0 og komst upp að hlið HK á toppnum. Bjarki Steinn Bjarkason var maður leiksins þar og Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er þjálfari umferðarinnar.
Topplið HK sigraði Leikni R. þar sem Kári Pétursson var enn á ný á skotskónum. Ásgeir Marteinsson átti einnig góðan leik.
Þróttarar gerðu góða ferð á Grenivík þar sem þeir unnu Magna 4-1. Karl Brynjar Björnsson skoraði og átti góðan dag í vörninni sem og Guðmundur Friðriksson. Rafn Andri Haraldsson var öflugur á miðjunni.
Aran Nganpanya var bestur í liði Hauka í útisigri gegn Njarðvík en þar skoraði Helgi Þór Jónsson mark heimamanna og var maður leiksins.
Ingi Rafn Ingibergsson skoraði þriðja mark sitt á tímabilinu í sigri Selfyssinga á Víkingi Ólafsvík en þar var hinn ungi
Guðmundur Axel Hilmarsson frábær í vörninni.
Aron Birkir Stefánsson fylgdi eftir frammistöðu sinni í Mjólkurbikarnum í síðustu viku með því að halda hreinu í 1-0 útisigri Þórs á ÍR.
Fyrri lið umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Athugasemdir