KA tapaði 2-1 á móti Stjörnunni á Akureyrarvelli í kvöld í hörkuleik í 9.umferð Pepsí-deildarinnar. Túfa þjálfari KA manna sagði að það væri svekkjandi að tapa svona leik þar sem þeir voru ekki verri aðilinn.
Lestu um leikinn: KA 1 - 2 Stjarnan
„Við vorum aldei lakari aðilinn í leiknum, við vorum að spila við lið sem er yfirleitt í titilbaráttu. Ég er ósáttur með að okkur er refsað um leið og við gerum mistök, það er svolítið okkar saga í sumar."
KA voru ekki lakari aðilinn í leiknum og höfðu verið síógnandi í seinni hálfleik, Túfa sagði að nú sé bara kominn tími til að snúa þessu gengi við eftir landsleikjahlé.
„Það var svolítið erfitt að spila í fyrri hálfleik, þeir voru að nýta vindinn vel með löngum boltum en mér fannst aldrei nein hætta. Svo í seinni hálfleik erum við að fá dauðafæri til að komast yfir og dauðafæri til að jafna leikinn. En við verðum að halda áfram og snúa þessu gengi við."
Athugasemdir