„Já við erum mjög ánægðir með að taka þrjú stig loksins. Við erum búnir að gera nokkur jafntefli í röð og það var kominn tími á að taka þrjú stig. Halda hreinu fannst mér líka mikilvægt" sagði Jónatan Ingi Jónsson leikmaður FH eftir 3 - 0 sigur á Víkingum þar sem Jónatan skoraði 2 mörk og var maður leiksins.
Lestu um leikinn: FH 3 - 0 Víkingur R.
„Við erum ekki búnir að byrja leikina nógu vel finnst mér á þessu tímabili, oft búnir að lenda undir og þurfa að koma til baka. Við komumst yfir í dag sem betur fer og eftir það fannst mér við vera betri aðilinn"
Jón Páll Pálmason knattspyrnuþjálfari deilir myndbandi á Twitter frá Shellmóti fyrir 10 árum og kallar þig þar „límið" Hvernig stendur á því?
„Ég og Jón Páll þekkjumst mjög vel. Hann var yngri flokka þjálfarinn minn í mörg ár og við höfum alltaf verið góðir vinir og það var eitthvað mark sem ég skora í úrslitleik á Shellmótinu þegar við unnum það og þá var ég kallaður límið og síðan þá hefur hann alltaf kallað mig það"
Nánar er rætt við Jónatan í sjónvarpinu hér að ofan.
10 árum seinna opnar "límið" markareikninginn fyrir mfl FH :) Veislan er að byrja #fotboltinet #pepsimorkinhttps://t.co/IDVKRlWQCn
— Jón Páll Pálmason (@jonpall_) June 14, 2018
Athugasemdir