Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 14. júní 2018 22:10
Matthías Freyr Matthíasson
Óli Kristjáns: Afar mikilvægt að vinna þennan leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við spiluðum að mér fannst prýðilega vel í kvöld og tókum völdin á vellinum sérstaklega eftir 1 - 0 markið og mér fannst sigurinn ekki vera í hættu og hefðum kannski getað bætt fleirum við. En það er þetta hefðum getað, það hjálpar ekkert." sagði sigurreifur þjálfari FH, Ólafur Kristjánsson eftir 3 - 0 sigur á Víkingum.

Lestu um leikinn: FH 3 -  0 Víkingur R.

„Hefði og hefði. Það er bara þannig að þú getur ekki notað það. Tilfinningin var sú allavegana að nú færi kannski að skilja aðeins á milli í deildinni. Við eigum leik við lið sem er þarna uppi með okkur í næstu umferð og það var afar mikilvægt að vinna þennan leik og vera með í þessum pakka.

Nú hef ég ekki séð fyrirsagnirnar en ég geri ráð fyrir að þú sért að segja að væntanlega verði það þannig. Jónatan spilaði feikilega góðan leik. Við vissum að Víkingar myndu gera út á líkamlegan styrk sem er þeirra styrkur og þá vildum við koma með léttari leik og þá fannst mér Jónatan svara því mjög vel til dæmis eins og aðrir sem voru inni á vellinum.

En það er frábært. Hann er búinn að vera virkilega góður á æfingum og vera að sýna okkur það í gegnum alla vikuna að það eru miklir hæfileikar þarna og gaman að sjá það þegar leikmenn færa það svo inn í leikinn þegar við spilum"


Nánar er rætt við Óla í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner