Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 14. júní 2018 22:32
Sverrir Örn Einarsson
Laugi: Byrjum leikinn hroðalega illa og það er mér að kenna
Guðlaugur Baldursson
Guðlaugur Baldursson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík steinlá á heimavelli gegn KR í kvöld þar sem KR skoraði tvö mörk á fyrstu fimm mínútum leiksins. Svo fór á endanum að leiknum lyktaði með stórsigri KR 0-4

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  4 KR

„Það er mjög erfitt sérstaklega á móti góðu liði eins og KR við gáfum þeim þessa forgjöf fyrstu 4-5 mínúturnar og eftir það var á brattann að sækja,“ sagði Guðlaugur Baldurson, þjálfari Keflvíkinga um það að erfitt væri að vinna fótboltaleiki með því að gefa tvö mörk í forgjöf.

Keflavík er í slæmum málum á botni deildarinnar og hefur aðeins náð í þrjú stig úr fyrstu níu leikjum sínum en Laugi vonast ennþá eftir fyrsta sigrinum.

„Að sjálfsögðu. Við ætluðum okkur að taka hann í dag en mér fannst við vera langt frá því og við byrjum leikinn alveg hroðalega illa og það er mér að kenna.“

Eins og alþjóð veit er Ísland að hefja leik á HM á laugardag gegn Argentínu og lék fréttaritara forvitni á að vita hvernig Laugi metur möguleika Íslands.

„Ef að þeir koma inná með samstöðu og vilja og skipulag sem þeir hafa haft að leiðarljósi eigum við ekki að segja jafntefli 1-1.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner