Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. júní 2018 21:42
Ingólfur Páll Ingólfsson
3.deild: Dalvík/Reynir með góðan sigur á Einherja
Úr leik Einherja fyrr í vetur.
Úr leik Einherja fyrr í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Einn leikur var á dagskrá í 3.deild karla í kvöld þegar Einherji fékk Dalvík/Reyni í heimsókn á Vopnafjarðarvelli.

Nökkvi Þeyr Þórisson kom gestunum yfir með marki á 40. mínútu. Á 52. mínútu tvöfaldaði Jóhann Örn Sigurjónsson forystuna og það var síðan Snorri Eldjárn Hauksson sem gerði út um leikinn.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og eru Dalvík/Reynir í 3.sæti deildarinnar með 12 stig, jafnmörk stig og KFG og KH.

Einherji er hinsvegar í 8.sæti deildarinnar með 6 stig, jafnir KF sem sitja í 9.sæti og með tveimur stigum meira en Sindri sem er á botninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner