Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 20. júní 2018 08:48
Arnar Daði Arnarsson
Alfreð segir það mikinn skell að missa Jóa Berg
Icelandair
Stórt skarð að fylla.
Stórt skarð að fylla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn, Alfreð Finnbogason var spurður að því á fréttamannafundi Íslands í morgun hversu mikill missir það væri ef Jóhann Berg Guðmundsson myndi ekki ná leiknum gegn Nígeríu á föstudaginn.

Jóhann Berg fór meiddur af velli í leiknum gegn Argentínu og allt bendir til þess að hann verði ekki leikfær á föstudaginn í Volgograd.

„Það er ekki spurning, það er mikill skellur þegar við missum leikmann sem hefur verið fastamaður í liðinu í nokkur ár. Ég held að allir viti hvað Jói getur, hann átti frábært tímabil í ensku úrvalsdeildinni og er að skila óeigingjörnu starfi í landsliðinu, bæði sem wing-back og stundum sem kantmaður," sagði Alfreð og hélt áfram.

„En eins og alltaf í fótboltanum þá kemur maður í manns stað og nýir menn fá tækifæri. Það er vonandi að sá sem kemur inn, verði tilbúinn og stígi vel í hans fótsspor. Ég hef fulla trú á því, við höfum sýnt það síðustu ár að við höfum breikkað hópinn okkar af góðum leikmönnum og ég trúi því að við getum leyst það."
Athugasemdir
banner
banner
banner