Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 20. júní 2018 17:50
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Marca: Real Madrid fær tvo syni Eiðs Smára
Daníel Tristan, yngsti sonur Eiðs Smára fer ásamt eldri bróður sínum til Real Madrid
Daníel Tristan, yngsti sonur Eiðs Smára fer ásamt eldri bróður sínum til Real Madrid
Mynd: Marca
Stærsta íþróttablað Spánar, Marca segir frá því í dag Evrópumeistarar Real Madrid hafi fengið til sín tvo syni Eiðs Smára Guðjohnsen, þá Andra og Daníel Guðjohnsen.

„Þótt svo Eiður Smári Guðjohnsen hafi spilað með Barcelona á ferli sínum, munu tveir af sonum hans spila með Real Madrid," segir í frétt Marca.

Andri Lucas Guðjohnsen er 16 ára en Daníel Tristan er 12 ára og ganga þeir til liðs við jafnaldra sína hjá spænska stórliðinu.

Andri hefur verið í akademíu Espanyol en Daníel hefur verið í La Masia akademíu Barcelona.

Barcelona reyndi að fá Andra til sín en fjölskyldan hefur ákveðið að flytja frá höfuðborg Katalóníu til höfuðborgar Spánar segir í frétt Marca.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner