Þróttur Reykjavík á þrjá fulltrúa og þjálfara 8. umferðarinnar í Inkasso-deild karla. Þróttur vann 5-2 sigur gegn Haukum á Ásvöllum, en það fara ekki mörg lið á þennan sterka heimavöll Hauka og sigra. Þróttur gerði það og er með þá Rafn Andra Haraldsson, Daða Bergsson og leikmann umferðarinnar Viktor Jónsson í liði umferðarinnar. Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Þróttar, er þá þjálfari umferðarinnar.
Þróttur á fjóra fulltrúa í liðinu en ÍA og Víkingur Ó eiga tvo fulltrúa. ÍA valtaði yfir Magna þar sem mótspyrnan var lítil. Albert Hafsteinsson var bestur í þeim leik og hann fær félagsskap frá Bjarka Steini Bjarkasyni sem er búinn að eiga frábær sumar og er liði umferðarinnar í þriðja sinn. Frá Víkingi Ó. komast Gonzalo Zamorano Leon og Emir Dokara eftir 2-0 sigur á Þór á Akureyri.
Stefán Logi Magnússon stóð sig vel í markinu hjá Selfossi við erfiðar aðstæður á Leiknisvelli í 1-1 jafntefli. Ernir Bjarnason, miðjumaður Leiknis, var bestur í þeim leik.
Jón Gísli Ström - Strömvélin var maður leiksins þegar ÍR sigraði Fram á útivelli og Birkir Valur Jónsson stóð sig frábærlega ásamt félögum sínum í vörninni hjá HK í sigri á Njarðvík.
Fyrri lið umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir