Lovren staðráðinn í að vinna Ísland
Dejan Lovren, varnarmaður Króatíu, segir ekkert annað en sigur koma til greina gegn Íslandi á þriðjudaginn.
Króatar eru komnir áfram í 16-liða úrslit en þeir vilja klára riðilinn með fullt hús stiga. Ísland verður hins vegar að vinna Króatíu til að eiga möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.
Króatar eru komnir áfram í 16-liða úrslit en þeir vilja klára riðilinn með fullt hús stiga. Ísland verður hins vegar að vinna Króatíu til að eiga möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.
„Leikurinn gegn Íslandi? Markmið okkar er klárt: Klára riðilinn með níu stig," sagði Lovren.
Króatar ætla að hvíla marga leikmenn gegn Íslandi og óvíst er hvort Lovren verði á sínum stað í vörninni eða ekki á þriðjudaginn.
Sjá einnig:
Gera Króatar 10 breytingar gegn Íslandi?
Rangur þáttur kom inn í dag en það hefur verið lagað! Hlustaðu á glænýja HM yfirferð á föstudegi #fotboltinet https://t.co/1pupOoPjzu
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) July 3, 2026


