Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. júní 2018 16:30
Arnar Daði Arnarsson
Halli Bjöss spáir í leik Póllands og Kolumbíu
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Lokaleikur dagsins á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi er leikur Póllands og Kolumbíu í H-riðli.

Bæði lið eru án stiga eftir fyrstu umferð og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda.

Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar spáir í leikinn sem framundan er.

Pólland 1 - 2 Kolumbía(Klukkan 18:00)
Bæði lið töpuðu sínum fyrstu leikjum og mega alls ekki við tapi. Þau taka því litla sénsa framan af og verður 0-0 í hálfleik. Falcao kemur Kólumbíu yfir og þurfa því Pólverjar að koma framar og verður refsað fyrir það. Lewandowski minnkar muninn í 2-1. Pólverjar detta því úr leik en Kólumbía á ennþá möguleika.
Athugasemdir
banner
banner