Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. júní 2018 11:51
Hafliði Breiðfjörð
Uppboð á HM málverki Tolla - málverk 3
Mynd: Tolli
Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli taka höndum saman nú á meðan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi stendur og bjóða upp þrjú málverk eftir Tolla hér á vefnum. Verkin eru merkt HM 2018 og aðeins verða þessi þrjú málverk máluð í þessum stíl.

Þetta er í þriðja sinn sem Fótbolti.net stendur fyrir slíkum uppboðum og öll upphæðin mun renna til Parkinson samtakanna að þessu sinni.

Fyrstu tveimur uppboðunum er lokið. Þriðja og seinasta myndin sem boðin er upp er í tengslum við þriðja leik Íslands á HM gegn Króatíu á þriðjudaginn. Hún er í stærðinni 60x60 cm.

Uppboðið er hafið hér á vefnum. Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].

Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boði en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða í þetta annað verk er fimmtudaginn 28. júní kl. 12:00.

Hæsta boð: 310.000,-

Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða.
Athugasemdir
banner
banner
banner