mán 30. maí 2005 20:20
Elvar Geir Magnússon
Valencia að krækja í Edu
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Á heimasíðu spænska liðsins Valencia segir að liðið sé búið að tryggja sér miðjumanninn Edu frá Arsenal. Þessi 26 ára leikmaður hefur lengi verið orðaður við Valencia og er sagt á heimasíðu liðsins að hann muni koma til liðsins á miðvikudag og skrifa undir fimm ára samning.

Edu vann sér inn sæti í brasilíska landsliðinu meðan hann var í herbúðum Arsenal en hann er fyristi brasilíski knattspyrnumaðurinn sem vinnur bæði deild og bikar á Englandi.

Edu hefur spilað með Arsenal síðan 2001 en þá var hann keyptur frá Corinthians í heimalandi hans.
Slapp
banner