Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   mið 08. júní 2005 07:56
Magnús Már Einarsson
Viðtalið: Grétar Rafn Steinsson
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Fótbolti.net ætlar að byrja með nýjan lið sem nefnist viðtalið en þar tökum við leikmenn sem hafa verið að gera það gott og vakið athygli. Grétar Rafn Steinsson er í viðtalinu í dag en hann verður í eldlínunni í leik Íslendinga og Möltu í kvöld.

Grétar talar um höfuðhöggið sem hann fékk gegn Ungverjum, sín gömlu félög KS og ÍA, aðstöðuna í Sviss, meiðsli á hné, golf, strákana í landsliðinu og gamla kempu sem spilar með honum hjá Young Boys.

Grétar hefur leikið frábærlega á tímabilinu og því þarf ekki að koma á óvart að einhver lið hafi sýnt honum áhuga eins og hann játar í þessu viðtali. Auk þess talar Grétar um viðskilnað sinn við ÍA og fleira.



Þó þú hafir leikið betur eftir höfuðhöggið í landsleiknum hefði þá ekki verið skynsamlegra að fara af velli eftir það atvik?
Nei í rauninni ekki. Þetta högg hafði nú engin áhrif á mig. Ég var búinn að finna mig ágætlega en eftir að ég settist niður í hálfleik kom sviminn og það. Það var ekkert sem aftraði mér í fyrri hálfleik annað en það að það þurfti að sauma þetta utan vallar.

Verðuru með gegn Möltu?
Já ég verð pottþétt með á morgun (Í dag).

Enginn hausverkur eða neitt svoleiðis?
Nei ég er fínn í dag.  Ég var slappur í gær (mánudag) en er fínn í dag.

Hvaða fleiri lið vildu fá þig áður en að þú fórst til Young Boys?
Brann í Bergen og RKC Waalwijk í Hollandi.

Af hverju ákvaðst þú að velja Young Boys frekar en hin liðin?
Það var besti kosturinn. Þarna sá ég fram á að ég gæti bætt mig verulega sem knattspyrnumaður og fengið að spila sem skiptir miklu máli fyrir unga leikmenn.

Hvernig er með nafnið á liðinu, Young Boys. Það er frekar óvenjulegt, hvernig kom það til, veistu það? Ég bara veit það ekki. Er þetta ekki svipað og Old Boys í Argentínu. Engin sérstök skýring á bakvið þetta.

Hvernig kom það til að þú fórst að spila með ÍA á sínum tíma?
Það komu margir af því. Sigurður Helgason sem starfar nú hjá KR var þjálfari KS og vildi endilega gefa mér tækifæri til að kíkja á æfingu. Raggi Hauks (sóknarmaður KS) var leikmaður hjá ÍA og þetta var svona í gegnum það.

Voru einhver önnur lið sem vildu fá þig áður en þó fórst til ÍA?
Já það voru einhver. Ekki mörg allavega og það var ekkert lið sem var tilbúið að borga flugfarið frá Siglufirði til Reykjavíkur.

Hvað varstu gamall þarna?
15-16 ára eitthvað svoleiðis.

Varst þú ósáttur við þær kröfur sem ÍA Setti um að fá uppeldisbætur fyrir þig á sínum tíma?
Það er búið að grafa það mál en ég er mjög ósáttur enn þann dag í dag því ég hefði viljað fara fyrr út og vera kominn framar en ég er kominn í dag.

Kemur til greina að spila með ÍA þegar að þú kemur aftur heim?
Ég ætla ekki að tjá mig um það.

Hvernig finnst þér að spila hægri bakvörð?
Það er fínt ef þú spilar með góðum leikmönnum sem gefa þér kost á að sækja fram á við þá er það mjög skemmtilegt.

Er það skemmtilegra en á miðjunni?
Þetta er öðruvísi en þetta getur verið mjög skemmtilegt með öðrum leikmönnum.

Hefur þú heyrt að einhver liði hafi verið að fylgjast með þér í vetur?
Já það eru nokkur sem hafa áhuga og hafa verið að fylgjast með mér núna í síðustu leikjum.

Einhver nöfn?
Ekki að svo stöddu.

Í hvaða löndum eru þessi lið?
Þetta eru góð lönd.

England?
Ekkert í Englandi nei, en í góðum deildum í góðum löndum.

Þýskaland?
Þetta eru góð lönd, segjum það bara.

Nú ert þú frá Siglufirði, fylgist þú mikið með þínum gömlu félögum í KS?
Já ég fylgist vel með öllu og er í góðu sambandi við Siglfirðinga. Þetta er uppáhaldsklúbburinn svo maður verður að fylgjast með þeim og kannski spilar maður með þeim í úrvalsdeildinni í framtíðinni.

Hvernig lýst þér á lið ÍA í dag?
Bara ágætlega, þetta hefur reyndar byrjað hræðilega hjá þeim. Það er náttúrulega mikið af ungum strákum að koma inn sem hafa verið í sigursælu liði 2.flokks síðustu ár í bland við eldri leikmenn. Stundum gengur það og stundum ekki en þeir hafa ekki verið að spila nógu vel en vonandi kemur það í næstu leikjum.

Hvernig þjálfari er Ólafur Þórðarson?
Hann er mjög góður. Vanmetinn en mjög góður. Hann er mjög góður í að byggja upp leikmenn og gefa þeim tækifæri, hann er óhræddur við það. Hann hjálpaði mér mikið og ég gerði mig í raun að þeim leikmanni sem ég er í dag.

Í Hinni hliðinni á Fótbolti.net árið 2002 sagðist þú spila í gamalli KS treyju innanundir liðstreyjunni en þessa KS treyju fékkst þú ,,lánaða” fyrir mörgum árum. Gerir þú það ennþá?
Ég geri það ennþá. Hún er reyndar orðinn helv.... slitin þannig að ég þarf að fá aðra ,,lánaða" við tækifæri en hún er til ennþá og er í Sviss núna.

Spilar þú ekki í henni í landsleikjum?
Nei ekki núna.

Hvernig er þjálfunin og aðstæðurnar í Sviss, er munurinn mikill þar og á Íslandi?
Já það er mikill munur. Náttúrulega atvinnumennska og mikið lagt upp úr að gera leikmenn betri. Ég er búinn að vera mjög heppinn með aðstæður og með þjálfara sem eru þarna núna. Ég er mikið á séræfingum sem eru að hjálpa mér í því sem að ég er lélegur í og það hefur gengið ágætlega.

Hvernig er munurinn á svissneska og íslenska boltanum?
Myndu Íslandsmeistarar FH til dæmis eiga eitthvað í svissnesku deildina?

Erfið spurning. Á góðum degi, eins og FH sýndi í fyrra að þeir geti náð góðum árangri í Evrópukeppninni, þá er aldrei að vita að þeir gætu verið þarna. Það er mikill munur á sterkustu liðunum í svissnesku deildinni og þeim slökustu. Ég veit ekki hvort þeir væru með efstu 4-5 liðunum en ef þeir spiluðu eins og í Evrópukeppninni í fyrra þá gætu þeir spilað í þessari deild.

Lýstu dæmigerðum degi hjá þér hjá Young Boys:
Vaknað fimm mínútur í níu. Klukkan níuu er ég kominn inn í klefa á æfingasvæðinu. Þá tekur við nudd og smá meðferð og síðan hálf tíu á ég að vera mættur út með aðstoðarþjálfaranum. Þá er séræfing í hálftíma þar til allir hinir koma. Við erum búnir svona hálf tólf og þá er ég aftur með þjálfaranum. Ég er búinn svona 12 - korter yfir tólf, búinn að sturta og allt klárt. Þá förum við allir saman í mat.

Frítími þá það sem eftir er?
Það er misjafnt. Stundum eru tvær æfingar og síðan förum við nokkrir saman í ,,Gymið" og leikum okkur. Oftast þegar að við erum að spila mikið er ein æfing á dag en annars eru tvisvar í viku tvær æfingar.

Hvað gerir þú í frítíma þínum þarna úti?
Það er ótrúlega mikið sem þú getur gert. Ég er orðinn hrikalega góður í pool,  er að læra á gítar en er reyndar hrikalega lélegur, er að læra frönsku,  er að læra þýsku og síðan bara að hanga eitthvað þess á milli með liðinu.

Ertu einn þarna úti?
Já ég er einn þarna úti en kærastan kemur núna í júní.

Þú talaðir um séræfingar, hverju ertu að reyna að bæta þig í?
Öllu sem ég er lélegur í. Þetta eru aðallega sendingar og móttaka og hafa boltann meira heldur en maður hefur gert í gegnum tíðina. Á Íslandi er oft mikið um kýlingar þannig að þú ert lítið með boltann og þegar að þú ert með boltann ertu oft að gera einhverja bölvaða vitleysu. Núna er maður farinn að vera svona rólegri á boltann og líður betur með hann.

Nú lendir þú í erfiðum hnémeiðslum fyrir nokkrum árum, hvernig vannst þú þig út úr þeim?
Ég var að ná samningi við lið (RKC Waalwjik) þegar að það gerist, það var að ganga í gegn þannig að það voru mikil vonbrigði að lenda í þessu. Umboðsmaður sem er vel tengdur við Ajax sem bauð mér það að koma þangað út. Eftir að ég hafði farið í gegnum undirbúning fyrir aðgerðina og unnið vel eftir aðgerðina þá fer ég þarna út í 2 mánuði og eftir það fer ég í trial bæði til Waalwjik og Young Bouys og fékk samninga á báðum stöðum en valdi Young Boys.

Ertu orðinn alveg góður af þessum meiðslum?
Ég bara veit ekki hvort hnéið það er. Ég er orðinn mjög góður. Þetta var færasti læknirinn á Íslandi sem gerði þetta og ég var í góðum höndum hjá sjúkraþjálfurum hérna og síðan var maður nett klikkaður til að halda þessu áfram.

Þú segir nett klikkaður, hvernig þá?
Nett klikkaður að standa í þessu svona og gera þetta. Ég dáist mikið af leikmönnum sem komast í gegnum erfið meiðsli og koma aftur til baka.

Aðeins að landsliðinu. Hvernig finnst þér að vera kominn inn í það, er góður andi í hópnum?
Þetta er bara eins og í fegurðarsamkeppni, Stebbi (Stefán Gíslason) er reyndar svolítið leiðinlegur en annars er þetta fínt.

Hver er herbergisfélaginn í landsliðinu?
Stebbi, hann talar aldrei við mig og ég er alltaf einn eiginlega.

Hvernig gekk þér í golfmótinu hjá landsliðinu?
Ég var mjög ósáttur með félagann sem ég fékk (Heiðar Helguson) því var logið að mér að hann væri besti golfarinn en ég var að bjarga honum fyrir horn á erfiðu holunum þannig að ég sá fyrir mér sigur.

Ertu mikið í golfinu?
Nei ekki neitt.

Þú ætlar væntanlega að festa þig í sessi og halda sæti þínu í byrjunarliðinu áfram?
Já ég er búinn að bíða lengi eftir að komast í landsliðið og ég ætla ekki að stoppa núna. Þetta er draumurinn sem er að rætast og síðan finnst mér hundleiðinlegt að sitja á bekknum svo ég ætla ekki að gera það.

Nú ert þú að spila með gömlu kempunni Stephane Chapuisat hvernig er hann?
Hann er fínn. Hann talar bara þýsku og frönsku þannig að ég þurfti að læra þýskuna áður en að þú gast byrjað að tala eitthvað við hann. Hann er mjög góður, þetta er stórt nafn í svissneskum bolta og umgjörðin í kringum hann á æfingum og í leikjum er eins og Eiður Smári kæmi aftur heim og spilaði með Val, þetta er svipað.

Áttu einhverja skemmtilega sögu úr boltanum í Sviss?
Nei, þeir eru svo passívir, þeir gera aldrei neitt af sér þarna út. Ótrúlega sérstakar týpur.
Athugasemdir
banner
banner