mán 25. júlí 2005 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Stoke og WBA leggja fram tilboð í Hannes Sig
Hannes í landsleik Íslands og Möltu í U-21 árs landsliðinu
Hannes í landsleik Íslands og Möltu í U-21 árs landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
West Bromwich Albions og Stoke City keppast nú um Hannes Sigurðsson framherja Íslenska landsliðsins og U-21 árs landsliðsins en bæði félög hafa samkvæmt norskum fjölmiðlum í morgun lagt fram tilboð í leikmannin. Hannes sagði við norska miðla að hann geti ekki tjáð sig mikið um þetta en að þetta líti spennandi út.

Hannes hefur verið hjá norska félaginu Viking undanfarin ár en þangað var hann keyptur frá FH fyrir nokkrum árum. Hann hefur spilað mjög vel fyrir U21 árs landslið Íslands og skoraði þannig tvisvar sinnum þrennu fyrir liðið í fyrra.

Ensku liðin munu hafa fylgst nokkrum sinnum með Hannesi í leikjum með Viking, nú síðast í leik gegn Portadown í UEFA Cup þar sem Bryan Robson var mættur á völlinn að fylgjast með leikmanninum.
Slapp
banner
banner