Knattspyrnudeil Vals hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna Bo Henriksen málsins umtalaða en Valsmenn saka Fram um að hafa virt að vettugi heiðursmanna samkomulag um að nota leikmanninn ekki í viðureign liðanna sem fór fram í gær. Yfirlýsinguna má lesa hér að neðan
Yfirlýsing frá knattspyrnudeild Knattspyrnufélagsins Vals
Vegna atburða siðustu daga, ummæli forsvarsmanna Fram i fjölmiðlum og fréttatilkynningu Fram vegna málsins, viljum við koma eftirfarandi stadreyndum á framfæri:
1. Fyrir fáeinum vikum hófust þreyfingar í þá átt að Bo Henriksen myndi yfirgefa leikmannahóp Vals. Um er ad ræða leikmann sem kom til okkar i sumar og var ætlad ad stækka leikmannahóp liðsins. Fljótlega kom i ljós ad hann var ekki i áformum þjalfara og var þvi leitað til félaga um það að hann myndi losna undan samningi við Val og ganga til lids við annað félag. Þad er þvi rétt sem kemur fram í fréttatilkynningu Fram að það var að frumkvæði Vals ad hann færi til annars liðs hér á landi.
2. Nokkur lið höfðu áhuga á því að fá Bo til liðs við sig og sá Börkur Edvardsson, formaður KND Vals um öll samskipti í þá átt. Það er því rangt ad einu samskiptin a milli félaganna hafi verið á milli framkvæmdastjóra þeirra.
4. Börkur og Brynjar, framkvæmdastjóri Fram, ræddust vid í tvígang í síma og komumst þeir ad samkomulagi um félagaskipti leikmannsins. Það lá fyrir allan timann að Fram myndi samþykkja skilmála Vals og getur formaður Knattspyrnudeildar Vals staðfest að fyrir liggi munnlegt samkomulag þess efnis.
5. Að samningaviðræðum loknum ræddi Unnar Steinn Bjarndal, framkvaemdastjóri Vals við Brynjar hjá Fram um hvernig skyldi standa að því ad losa Knattspyrnudeild Vals undan ábyrgð á samningsskuldbindingum félagsins á hendur leikmanninum og hvernig best væri að Fram myndi taka við ábyrgð á launa- og hlunnindagreiðslum til leikmannsins. Úr varð að Fram gerði nýjan samning við leikmanninn og Valur myndi rifta samningi sinum vid Bo. Þetta var gert i kjölfarið.
6. Vegna samkomulags Barkar og Knattspyrnudeildar Fram um skilmála vegna félagaskiptanna lögðu undirritaðir mikla áherslu á að sá hluti samkomulagsins yrði undirritaður. Það var borid undir Brynjar hjá Fram sem tjáði Unnari Steini að það yrði ekkert vandamál hvað Fram varðar. Í kjölfarið var samningur þess efnis sendur á Fram. Honum var ekki skilað undirrituðum og hefur ekki enn fengist staðfestur, eins og atburðir siðustu daga benda augljóslega til.
7. Forsvarsmenn Vals höfðu á þessum tímapunkti enga trú á að efast um heiðarleika forsvarsmanna Fram og samþykktu að leyfa félagaskiptum leikmannsins ad ganga í gegn án þess ad búid væri að ganga skriflega frá þessum hluta samkomulagsins. Báðir samningsaðilar voru þó með það á hreinu að þetta hafi verið grunnforsenda fyrir félagaskiptum Bo.
8. Eftir að félagaskipti leikmannsins höfdu gengið í gegn var marg oft reynt ad hafa samband vid Brynjar hjá Fram þannig að hægt væri að ganga skriflega frá munnlegu samkomulagi vegna skilyrðisins margfræga. Forsvarsmenn Fram vildu þó ekki láta ná í sig en af símtölum formanns KND Vals og framkvæmdastjóra Vals vid Brynjar hjá Fram að dæma, töldu undirritadir ad svo sjalfsagt væri að Fram myndi standa við gefid orð að ekki var aðhafst meira ad svo stöddu.
9. Morguninn eftir undanúrslitaleik Vals og Fylkis hafði Unnar Steinn aftur samband vid Brynjar í Fram. Undirrituðum var farið að gruna ad best væri, formsins vegna, að fá áður samþykkt samkomulag félaganna skjalfest til þess að forðast öll vandræði í framtíðinni. Enda var orðið ljóst að liðin tvö myndu leika í bikarúrslitaleik sem haldinn verður 24. september næstkomandi.
Það náðist loks í Brynjar hjá Fram í heimasíma hans en í því símtali tjáði hann Unnari Steini að Fram myndi
10. Fyrir leikinn i gær innti Börkur Brynjar eftir því hvort að það væri virkilega satt að þeir ætluðu ekki að standa við gefið loforð. Brynjar svaradi því til að þeir gætu ekki
11. Undirritaðir telja undarlegt hvernig forsvarsmenn Fram hafa gengið fram í þessu máli og undra sig á því hversu langt þeir seylast í því að fara með ósannindi. Að lokum skulu orð standa; hvort sem þau eru skjalfest eda sögð í tveggja manna tali. Það kemur Val þó vel í þessu máli hversu góð sönnunarstaða félagsins er; enda hafa tveir menn verið í samskiptum við Fram út af málinu frá upphafi og báðir fengið það staðfest munnlega að Fram myndi standa við gefin ord.
12. Okkur fannst rétt að málið yrði útskýrt í smáatriðum til þess að jafnt stuðningsmenn Vals, fjölmiðlar og ekki sist áhangendur Fram myndu skilja hvar ábyrgðin liggur. Það er ljóst að samkomulag af þessu tagi er oft gert á milli liða hér á landi. Það þykir ekki góð latína að stuðla að því að atvinnufrelsi manna sé skert með samningum á þennan hátt en yfirleitt hefur félagið sem tekur við leikmanni svo mikla hagsmuni af því að fá hann til liðs við sig að svona samkomulag sé virt. Það voru og hagsmunir Vals að Bo myndi ekki spila gegn sínum gömlu félögum, enda hefði þjálfari liðsins aldrei leyft honum að fara ef ekki væri búið að semja um þennan þátt málsins.
13. Að okkar mati geta forsvarsmenn Fram ekki skýlt sér á bakvið neitt í þessu máli og tilraunir þeirra til ad beina spjótum að Val í þessu máli eru ekki uppá marga fiska. Við vonumst til þess að þessi samskiptamáti Fram verði aldrei endurtekinn í íslenskum íþróttum.
Valur mun á næstu dögum einbeita sér á ný að toppbaráttu Landsbankadeildarinnar og undirbúningi fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Fram. Það er ljóst að það verður hörkuslagur gömlu Reykjavíkurstórveldanna þar sem gód knattspyrna verður vonandi höfð að leiðarljosi.
Okkur þykir leitt að þetta mál hafi helst til bitnad á þeim sem síst eiga þad skilið; leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum Vals.


