ÍBV hefur kvartað yfir Valsmönnum fyrir að ræða ólöglega við Atla Jóhannsson leikmenn ÍBV í þeirri von um að fá hann til liðs við sig næsta sumar.
Atvikið átti sér stað síðastliðinn þriðjudag, 23. ágúst er Atli fékk símtal úr GSM síma sem skráður er á Edvard Börk Edvardsson formann knattspyrnudeildar Vals og fyrirtækið sem hann vinnur hjá. Sá er hringdi spurði Atla hvort hann hefði áhuga á að ganga til liðs við Valsmenn því hann hefði heyrt að hann væri að flytja til Reykjavíkur og Valur væri metnaðarfullur klúbbur.
Atli sagðist hafa í hyggju að standa við samning sinn hjá ÍBV sem rennur út í lok árs 2006 eins og staðan væri núna. Viðmælandinn mun þá hafa spurt Atla hvort hann gæti ekki sagt samningi sínum upp en Atli sagði enn nei.
Símtalið á sér stað aðeins sex dögum áður en Valur og ÍBV eigast við í Landsbankadeildinni á mánudag. Þá hefur Valur samband við leikmanninn án leyfis ÍBV en reglur kveða á um að félagi sé óheimilt að ræða við leikmann sem er samningsbundinn nema með leyfi félagsins. Þá er félagaskiptaglugginn hér á landi lokaður.
Fótbolti.net hafði samband við Börk Edwardsson formann knattspyrnudeildar Vals í dag með því að hringja í símanúmerið sem hringt var í Atla úr. Símanúmerið er skráð á nafn Barkar í símaskrá eins og áður sagði.
Börkur sagðist ekkert kannast við að hafa hringt í Atla og sagðist aukinheldur ekki hafa hugmynd um hver Atli Jóhannsson leikmaður ÍBV er þrátt fyrir að staðfesta að hann fylgdist með íslenskum fótbolta. Hann sagði að orð stæði gegn orði í þessu máli en hafði ekki heyrt af því að ÍBV hyggðist senda KSÍ kæru vegna málsins.
Atli Jóhannsson er 22 ára miðjumaður sem hefur vakið mikla athygli á miðjunni hjá ÍBV í ár og í fyrra. Atli sem er uppalinn Eyjamaður hefur leikið 15 leiki í Landsbankadeildinni í sumar.
Smelltu hér til að taka þátt í umræðum um málið á spjallinu


