Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 11. september 2005 22:49
Magnús Már Einarsson
Breiðablik Íslandsmeistari í 3.flokki karla
Mynd: Torfi Bryngeirsson
Breiðablik varð í dag Íslandsmeistari í 3.flokki karla en liðið sigraði Fylki 2-1 í framlengdum úrslitaleik í Árbænum. Blikar komust yfir í fyrri hálfleik þegar að Viktor Unnar Illugason skoraði af nokkru harðfylgi eftir stungusendingu.

Eftir um 50 mínútna leik fékk Guðmundur Kristjánsson miðjumaður Blika rauða spjaldið. Þegar að ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma náði Guðlaugur Victor Pálsson að jafna með skalla eftir hornspyrnu

Fylkir fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn þegar að fjórar mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma en þá fékk liðið vítaspyrnu. Valdimar Valdimarsson markvörður Blika varði spyrnuna hinsvegar vel.

Því varð að grípa til framlengingar og í henni skoraði Viktor Unnar sitt annað mark og annað mark Blika eftir stungusendingu og lokatölur 2-1.

Við óskum Breiðablik að sjálfsögðu til hamingju með titilinn.

Smellið hér til að skoða stærri mynd af Blikaliðinu
Slapp
banner
banner
banner