Leikmaður Víkings í rúmlega átta mánaða bann
Á fundi aganefndar KSÍ í dag var Vilmundur Sveinsson, 19 ára leikmaður 2. flokks karla hjá Víkingi R., úrskurðaður í rúmlega átta mánaða leikbann. Honum er óheimil þátttaka í öllum opinberum mótum innan vébanda KSÍ vegna brottvísunar sem hann hlaut 17. september 2005 fyrir að slá dómara.
Leikbannið gildir frá 7. október 2005 til og með 17. júní 2006. Atvikið átti sér stað í úrslitakeppni í C-deild 2.flokks karla í leik milli Víkings og KA sem fram fór á Víkingsvelli. Þetta var síðari leikur liðanna um laust sæti í B-deild en KA vann fyrri leikinn á Akureyri 3-0. Víkingar náðu ekki að vinna þann mun upp í seinni leiknum en unnu þó 2-0 sigur.
Það varð allt snælduvitlaust í leiknum en Víkingar voru allt annað en sáttir við störf dómara leiksins, Ólafs Kjartanssonar. Að leik loknum hópuðust leikmenn liðsins og fleiri að dómaranum og höfðu enga stjórn á skapi sínu. Vilmundur, sem vermdi varamannabekkinn allan leikinn, gekk lengst og lamdi Ólaf dómara. Það var sannkallað stríðsástand sem ríkti í Víkinni.
Það voru alls sex leikmenn Víkings sem fengu að líta rauða spjaldið eftir að leik lauk og einn í venjulegum leiktíma. Átta leikmenn Víkings sem voru á skýrslu í þessum leik voru úrskurðaðir í leikbann í dag, þar á meðal Ívar Orri Aronsson sem fékk þriggja leikja bann en flestir hinir fengu tveggja leikja bann. Þá fékk Víkingur sekt upp á 25.000 krónur.