Einu sinni í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. að þessu sinni er það Greta Mjöll Samúelsdóttir sem er 18 ára sóknarmaður úr liði Breiðabliks. Greta fór á kostum í liði Blika sem varð Íslandsmeistari í sumar en hún skoraði ellefu mörk í þrettán leikjum í Landsbankadeildinni.
Greta sem var valinn efnilegust í Landsbankadeild kvenna skoraði fjölda marka fyrir U-19 ára landsliðið nú á haustdögum og þá var hún einnig valinn í fyrsta skiptið valinn í A-landsliðið.
Greta á ekki langt að sækja fótboltahæfileikana en móðir hennar Ásta B. Gunnlaugsdóttir var frábær sóknarmaður á sínum tíma, faðir hennar er einnig þekktur en það er íþróttafreéttamaðurinn góðkunni Samúel Örn Erlingsson.
Fullt nafn: Greta Mjöll Samúelsdóttir MEÐ E-i
Gælunafn: Gretchen, Gretzky og Böðvar Breki!
Aldur: 18 ára
Giftur / sambúð? Ég á kærasta sem heitir Óðinn.
Börn: Ég á engin svoleiðis ennþá.
Hvað eldaðir þú síðast? Í gær grillaði ég lambafillet, bjó til sósuna mína og allt meðfylgjandi.
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Helst pepperoni og banana. (satt)
Uppáhaldssjónvarpsefni? Allt sem mér finnst gaman að horfa á.
Besta bíómyndin? Zoolander, Sweet November og Million Dollar Baby er geðveik.
Hvaða tónlist hlustar þú á? Það er svo misjafnt eftir hvernig skapi maður er í en ég held mest upp á Gavin Degraw, John Mayer, Amos Lee.
Uppáhaldsútvarpsstöð: Úff mig langar mest að stofna mína eigin vegna þess að lögin sem ég fíla mest eru aldrei í útvarpinu*!
Uppáhaldsdrykkur: Swiss mocca
Uppáhalds vefsíða: verður maður ekki að segja fotbolti.net og svo auðvitað bloggið mitt.
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Já, ég er mjög hjátrúafull bara yfir höfuð! Fyrir leiki reyni ég yfirleitt að borða það sama, er bara með ákveðið margar spennur í hárinu og hlusta á sömu tónlistina.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Ég er mjög léleg í að
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Eitthverju liði í Georgíu.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Mamma var ákveðin fyrirmynd en átrúnaðargoð voru aldrei fótboltamenn. Meira svona Hanson bræðurnir eða eitthvað..(hehe)
Erfiðasti andstæðingur? Systir mín. (höfum einu sinni keppt á móti hvorri annarri, ég rotaðist og hún ristarbrotnaði)
Ekki erfiðasti andstæðingur? Þarf maður ekki alltaf að hafa fyrir andstæðingnum bara mismikið. Ég held ég tæki nú pabba í nefið ef við færum í einn á einn út í garði.
Besti samherjinn? Örugglega systir mín..... Hófí taktu fram skóna!!!!!!
Sætasti sigurinn? Á Hlíðarenda síðasta sumar, kláruðum þetta á 93.
Mestu vonbrigði? Engin stór ennþá....... 7.9.13
Uppáhaldslið í enska boltanum? Juventus?…. Æi fylgist lítið með þessu.
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Zlatan Ibrahimovic
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Guðni Bergs.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn ídeildinni? Ranni bró í Víking.
Fallegasta knattspyrnukonan? Dóra María rosa sæt.
Grófasti leikmaður deildarinnar? Pála
Besti íþróttafréttamaðurinn? Samúel Örn Erlingsson, hvernig spyrðu?
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Allir góðir, bara misgóðir
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Unnur Ágústa fegurðardís.
Hefurðu skorað sjálfsmark? Eitthvern tíman á æfingu bara. 7.9.13
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það stendur örugglega mest upp úr í sumar á Keflavíkurvelli þegar ég hélt að dómarinn hafði verið að dæma brot. Ég rauk beint á boltan (ÆTLAÐI sko að taka þessa aukaspyrnu) voða æst og spyr hvar spyrnan eigi að vera, dómarinn segir mér þá frá því að það sé komin hálfleikur. Ég leit upp og allir voru farnir útaf. Nema auðvitað ÖLL stúkan tók eftir þessu og stuðningsmenn Blika, með mömmu í fararbroddi, klöppuðu og fögnuðu mér mjög.
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? nebbs
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Árið 2002 held ég.
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Ógeðslega Fine.
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já, reyndar geri ég það.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Að konur mættu ekki vera dómarar.
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) ég bíð enn og held í vonina að Hanson komi til landsins.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Upphitun
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Pabbi minn
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Ísskápurinn
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Ég er frekar góð á morgnana en baráttan er meira að ná kallinum fram úr.
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Neil Armstrong, þvílík hetja.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, ég fylgist eigilega ekkert með fótbolta í sjónvarpi, ég horfi örugglega meira á frjálsar.
Hver er uppáhalds platan þín? Pearl jam „Rearviewmirror: Greatest Hits 1991-2003“
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Ég held ég hafi aldrei gert það!
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas predador, AÐ SJÁLFSÖGÐU!!
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Örugglega stærðfræði


