Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mið 19. október 2005 15:38
Magnús Már Einarsson
C. Ronaldo handtekinn grunaður um nauðgun
Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Lille í gærkvöldi.
Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Lille í gærkvöldi.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo kantmaður Manchester United hefur verið handtekinn þar sem hann er grunaður um nauðgun. Scotland Yard lögreglan hefur staðfest að það hafi handtekið mann á tvítugsaldri í kringum málið en þetta kemur fram á BBC. Manchester United hefur hinsvegar ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.

Hinn portúgalski Ronaldo er talinn hafa nauðgað stúlku á hóteli í London þann 2.október síðastliðinn og var annar maður með honum en hann var ekki handtekinn. Ronaldo var staddur í London þar sem Manchester United sigraði Fulham 3-2 1.október og gisti hann því á hótelinu í borginni.

Við á Fótbolti.net munum að sjálfsögðu flytja frekari fréttir af málinu þegar að þær berast.
Athugasemdir
banner
banner
banner