Manchester United gætu fengið Patrice Evra varnarmann Monaco í Frakklandi í sínar raðir ef kaupverðið er rétt en þetta er haft eftir umboðsmanni leikmannsins. Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd vill fá Evra í sínar raðir til að leysa stöðu Gabriel Heinze sem er meiddur.
Frederico Pastorello umboðsmaður Evra sagði í dag um hugsanleg félagaskipti leikmannsins: ,,Við ræddum lengi við þá [Monaco] og þeir eru ekki mótfallnir því að hann fari. Ef rétta tilboðið kemur, þá munu félagaskiptin til United ganga í gegn."
Evra er franskur landsliðsmaður sem getur líka spilað á miðjunni. Hann er metinn á 5 milljónir punda og Inter Milan eru líka sagðir á eftir honum og talið að þeir hafi lagt fram 3,5 milljón punda tilboð.
Evra á í deilum við Monaco en hann mætti ekki til æfinga í þrjá daga eftir jólin og hefur því verið tekinn úr leikmannahópnum sem mætir Auxerre í kvöld.
Ef hann gengur í raðir Man Utd verður hann önnur kaup félagsins í félagaskiptaglugganum því Nemanja Vidic gekk í raðir þeirra í dag.


