Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   fim 02. febrúar 2006 08:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: Morgunblaðið 
Jóhannes Karl til AZ í sumar (Staðfest)
Gefur kost á sér í landsliðið
Jóhannes Karl Guðjónsson miðjumaður Leicester hefur skrifað undir fjögurra ára samning við hollenska liðið AZ Alkmaar og mun hann ganga til liðs við hollenska félagið þegar samningur hans við fyrrnefnda liðið rennur út í sumar.

,,Ég er búinn að fara í læknisskoðun og það er allt klárt hvað samninginn varðar. Ég vonast til þess að vera ekki settur út í kuldann hjá Leicester í framhaldinu en eins og staðan er hjá okkur í 1. deildinni þá tel ég engar líkur á því að svo verði. Þeir þurfa einfaldlega á mér að halda og ég mun gera mitt besta fyrir liðið," sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið en hjá AZ Alkmaar mun hann hitta fyrir annan fyrrum leikmann ÍA, Grétar Rafn Steinsson.

Jóhannes Karl ákvað síðastliðið vor að gefa ekki kost á sér í landsliðið en hann hitti Eyjólf Sverrisson nýráðinn þjálfara íslenska landsliðsins í London í fyrradag eftir 3-2 sigur QPR á Leicester í ensku fyrstu deildinni.

Eftir fundinn hefur Jóhannes ákveðið að gefa aftur kost af sér í íslenska landsliðið en hann sagði við Morgunblaðið: ,,Það var gott samtal sem ég átti við Eyjólf í gær og hann er með fínar hugmyndir um framtíð liðsins. Við getum sagt að "stríðsöxin" hafi verið grafin en það er að sjálfsögðu undir Eyjólfi komið hvort hann telji þörf á því að velja mig í liðið. Það er enginn með áskrift að liðinu."
Slapp
banner