fös 03. febrúar 2006 20:05
Hafliði Breiðfjörð
Framarar íhuga að kæra Val vegna Þorvaldar
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Framarar íhuga að kæra Valsmenn fyrir að ekki bara ræða ólöglega við samningsbundinn leikmann heldur gera við hann samning líka. Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson sem í dag samdi við Val um að leika með liðinu á næstu leiktíð er samningsbundinn Fram út næsta ár.

Brynjar Jóhannsson framkvæmdastjóri Fram var hneykslaður á framkomu Vals í málinu þegar Fótbolti.net ræddi við hann nú í kvöld.

,,Þetta er bara algjörlega óþolandi að menn skuli aldrei geta unnið eftir reglunum í þessu," sagði Brynjar Jóhannsson framkvæmdastjóri Fram við Fótbolta.net í kvöld.

,,Þessi vinnubrögð hjá Val eru með ólíkindum. Maðurinn er samningsbundinn Fram út þetta ár og ef þeir ætla að fá hann til sín þá bara tala þeir við okkur fyrst og fara réttar leiðir í þessu."

Miklar deilur voru milli Fram og Vals í sumar þegar Bo Henriksen gekk í raðir Fram frá Val og spilaði svo gegn Val í Landsbankadeildinni og skoraði bæði mörkin í sigurleik Fram. Valsmenn sögðu eftir leikinn að samkomulag væri milli félagana um að leikmaðurinn spilaði ekki gegn Val en Framarar sögðu að aldrei hafi verið gert slíkt samkomulag.

,,Við munum skoða okkar mál en viljum ekkert gera gagnvart Makan. Það er það eina sem kannski bjargar þeim að við munum sjálfsagt ekki vera með nein leiðindi gagnvart þessu út af Makan sjálfum. En gagnvart Val þá eiga þeir ekkert inni hjá okkur, þetta er bara bull."

Valur lenti í því í sumar að ÍBV kærði þá fyrir að ræða ólöglega við Atla Jóhannsson og fengu dóm fyrir það hjá KSÍ. Víkingar kærðu Valsmenn svo í vetur fyrir að ræða við Grétar Sigfinn Sigurðsson og Viktor Bjarka Arnarson en drógu þá kæru hinsvegar til baka síðar og nú eru það Framarar sem íhuga að leggja fram kæru.

,,Það gæti alveg verið að við myndum henda inn kæru fyrir að rætt sé ólöglega við hann, ég tel það alls ekkert ólíklegt. Þeir eiga bara ekki annað skilið menn geta bara ekki unnið svona, það bara gengur ekkert upp. Við bara fáum félagaskiptablað inn á borð hjá okkur, búið að semja við manninn, þetta eru bara hlægileg vinnubrögð," sagði Brynjar að lokum.

Valsmenn vildu ekkert láta eftir sér hafa um málið.

Sjá umræðu um málið á spjallborði Fótbolta.net
Slapp
banner
banner