Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 16. febrúar 2006 07:04
Hafliði Breiðfjörð
Pongolle finnur bara Everton menn í Liverpool
Þrátt fyrir að vera eini framherji Liverpool sem hefur skorað á árinu var Florent Sinama Pongolle lánaður frá félaginu til Blackburn nú í janúar. Hann vann sér þó ekki inn mörg stig hjá Púllurum þegar hann ræddi við fréttamann á dögunum um stuðnignsmenn Everton.

,,Ég hef verið í þessu landi í þrjú ár svo ég þekki metinginn milli Everton og Liverpool, en hvert sem ég fer í Liverpool eru fótboltaáhugamennirnir sem ég hitti allir stuðningsmenn Everton," sagði Pongolle.

,,Stærri hlutinn af fólki í Liverpool styður Everton. Liverpool á stuðningsmenn í Evrópu og allsstaðar annarsstaðar, það er þess vegna sem Anfield er alltaf fullur. En þegar þú ferð á Goodison, þá er hann bara fullur af fólki frá Liverpool. Það eru allt Scousers."
Slapp
banner
banner
banner