Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. mars 2006 11:40
Hafliði Breiðfjörð
Háskólalið í Bretlandi leitar að Íslendingum
Frá leikvangi félagsins.
Frá leikvangi félagsins.
Mynd: Bath
Háskólinn í Bath í Englandi leitar nú eftir íslenskum knattspyrnumönnum sem hafa áhuga á að hefja nám í skólanum og leika með knattspyrnuliði skólans sem meðal annars tekur þátt í elstu fótboltakeppni heims, FA Cup, á Englandi.

Tom Rutter sem lék með Fram fyrir nokkrum árum er þjálfari liðsins en hann er að leita að leikmönnum sem hafa metnað í námi einnig.  Með því að keppa alvöru leiki gæti veran í Bath auglýst fótboltamenn vel upp og þeir fengið athygli annarra félaga á landinu.

Team Bath sem er fótboltalið skólans var stofnað árið 1999.  Ungir leikmenn fá tveggja ára samning hjá liðinu og með háskólanáminu fá þeir því fullkomnar fótboltaæfingar eins og þær gerast bestar. 

Liðið leikur í einni af utandeildum Englands og árið 2002 urðu þeir fyrsta háskólaliðið í 122 ár til að fá þátttökurétt í FA Cup.  Liðið er með margar tengingar við atvinnumannalið á Suð-Vestur svæði Englands og jafnvel lengra.  Margir leikmanna liðsins hafa síðar leikið sem atvinnumenn á Bretlandi.

Heimasíða skólans er: www.teambath.com

Hægt er að hafa samband á netfangið [email protected]
Slapp
banner
banner
banner