þri 21. mars 2006 07:31
Hörður Snævar Jónsson
Hin Hliðin: Björn Orri Hermansson (Ipswich)
Mynd: Úr einkasafni
Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina á Fótbolti.net og að þessu sinni er það Björn Orri Hermansson leikmaður Ipswich sem sýnir á sér Hina Hliðina. Björn er á sínu fyrsta ári hjá Ipswich eftir að hafa komið frá Fylki. Björn var einnig lykilmaður í U-17 ára landsliðinu í sumar en við skulum kíkja á hina hliðina á honum

Fullt nafn: Björn Orri Hermannsson

Gælunafn Björn(í landi ljótafólksins kallaður B-Jorn) Borri, norðurljósin (hárið) hvíta Faxið

Aldur: Að verða 17

Giftur / sambúð? Á kærustu sem heitir Sandra
Börn: Ég á 7 börn, nei ég ætla mér ekki að eignast slíkt alveg strax

Hvað eldaðir þú síðast? Sennilega bara pasta

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperoni og Sveppi, annars étur maður allt

Hvernig gemsa áttu? Samsung

Uppáhaldssjónvarpsefni? Ætli að það sé ekki lost í aungablikinu

Besta bíómyndin? Ég bara get ekki sagt það, hef séð of margar góðar myndir. Get ekki gert upp á milli þeirra en samt er Cruel Intentions mjög góð

Hvaða tónlist hlustar þú á? Ég get látið mig hafa hvað sem er, en ætli klassískt rokk sé ekki vinsælast

Uppáhaldsútvarpsstöð: Nenni ekki að hlusta á útvarpið, tómt vesen, færð aldrei meira en 4 góð lög í röð ef þú ert heppinn.

Uppáhaldsdrykkur ? Veit ekki, þegar maður á heima í Englandi ætli að það sé ekki bara íslenskt vatn

Uppáhalds vefsíða Fótbolti.net auðvitað. Það er ekki nein önnur sem kemur til greina.

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei ekkert slíkt, hef þetta bara hefðbundið

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Með því að tækla þá eins mikið og hægt er, og eftir hverja einustu tæklingu hjálpa þeim á fætur og segja: æ sorry ætlaði ekki að meiða þig. Svo auðvitað hamrar maður þá aftur um leið og hægt er. Svo klikkar heldur ekki að hlægja af þeim.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Norwich

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Ætli það verði ekki að vera Makalele. Hann vinnur öll skítverkin og er alltaf góður.

Erfiðasti andstæðingur? Strikerin fyrir Dani á Norðurlandamótinu í hitt í fyrra. Spilaði fyrir Arsenal.

Ekki erfiðasti andstæðingur? Engin svona eftst í huga. Þeir eru flestir erfiðir á sinn hátt.

Besti samherjinn? Það er ekki hægt að gera upp á milli 2. Runólfur Sveinn og Oddur Ingi

Sætasti sigurinn? Klárlega að vinna blikana í 4.flokki og þar að leiðandi vinna öll mótin sem við tókum þátt í.

Mestu vonbrigði? Fyrsti leikur á Norðurlandamótininu á íslandi, þegar að ég spilaði skelfilega og skoraði meira að segja sjálfsmark. Og svo auðvitað annað núna á dögunum, vera sagt 40.mín fyrir leik á móti Liverpool á Anfield að ég væri ekki í hópnum(leikur í Fa youth Cup)
Uppáhaldslið í enska boltanum? Man Utd

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Makalele

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ég er svo ungur að ég verð bara að halda mig við Eið Smára

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins Bjarni Þór Viðarson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Rúrik Gíslason

Fallegasta knattspyrnukonan? Ég er mjög lélegur að horfa á kvennaboltann, þannig að ég get því miður ekki sagt hver er fallegust.

Grófasti leikmaður deildarinnar? Heima teljast nú flestir grófir miðað við þessa kjúklinga hérna

Besti íþróttafréttamaðurinn? Finnur Kolbeinson, ekki sá sem spilaði með Fylki. Hann vinnur reyndar ekki við það en hef sterka trú á því að hann eigi eftir að meika það í bransanum.

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Þeir eiga allir sínar skelfilegu hliðar

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Heima í Fylki, Ævar Sveinn, en hérna hjá Ipswich er það án efa Óskar Petturrrsson

Hefurðu skorað sjálfsmark? Já 1 sinni og það er alveg nóg.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þau hafa nú örugglega skeð nokkur þótt að maður muni ekki eftir þeim. Það eina sem að mér dettur í hug núna er þegar Runi (meiðslakóngur) rotaðist og ætlaði að halda áfram að keppa á einhverju Reykjarvíkurmóti innanhús þegar við vorum um 14 ára. Maður veit að maður á ekki að hlægja þegar slíkt gerist en þetta var bara frekar fyndið. Þegar Runi var alveg nýkomin til meðvitundar ætlaði hann bara að standa upp og labba þetta af sér en það var frekar erfitt þar sem að hann get varla lyft löppum, hann var samt ekkert á því að gefast upp og það var ekki fyrr en hann var orðin dauðþreyttur á því að reyna að standa í lappirnar að hann gafst upp og í kjölfarið var hringt á sjúkrabíl.
Svo gerðist annað mjög svipað dæmi hérna hjá einum af leikmönnunum í 18 ára liðinu hjá Ipswich um daginn á móti Arsenal. Þá fór liðsfélagi minn upp í skallabolta og skall saman við hinn leikmanninn, þetta virtist allt frekar meinlaust og leikurinn hélt áfram en svo kemur leikmaðurin á hliðarlínunan og er farinn að kvarta undan því að hann finni ekki fyrir höndunum og hausnum. 1 mín seinna kemur boltinn til hans og hann hleypur bara í burtu frá honum. Þá áttar þjálfarinn sig á því að það sé eitthvað að og tekur hann útaf. Þegar hann er kominn á bekkinn fer hann að spyrja hvað gerðist, hvar hann sé, hver hafi verið að klæða hann úr fötunum, hvað staðan er og hvar pabbi sinn sé. Þessara spurninga spyr hann svona 16 sinnum og alltaf svara þeir sem eru á bekknum með honum. Einn af strákunum á bekknum ákveður þá að vera mjög sniðugur fyrst að hann man ekkert sem gerðist seinustu daga og segir að það sé eins gott fyrir hann að muna að láta sig hafa rolex úrið sitt aftur á morgun. Þá panicar hann og fer í þvílíka vörn. Það er ekkert sniðugt að vera að hlægja af þessu en það var ekki annað hægt í momentinu. Hann lagaðist svo alveg dagin eftir og er alveg í fulli fjöri núna.

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Já, maður er ekki maður meðal manna nema að maður geri það

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Hann var bara tímabilið áður en ég fór út, man ekki hvort ég hafi verið 15 eða nýorðin 16 þegar ég spilaði en það var allavega á móti Val.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Hún er klassi hellingur af góðum fréttum

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Eins oft og ég get

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Hvernig þú matt fanga, maður á ekki gera neitt lengur þegar maður fangar.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Auðvitð Bítlana en þeir eru víst ekki starfandi ennþá.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hita upp

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Shane Supple, framtíðar markmaður, aðeins 19 ára og er aðalmarkmaður hjá Ipswich.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Heima er alltaf best, svo er bío-ið líka mjög vinsælt hérna úti.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Fer eftir því hvað er að gerast um morgunin, oftast mjög snöggur, nema þegar um skóladag er að ræða.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Ronaldinho unaður að horfa á hann með boltann

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já reyni að fylgjast með sem flestum.

Hver er uppáhalds platan þín? X og Y Coldplay í augnablikinu

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Núna um daginn, til að fara á Ísland- Trínidad og Tóbagó

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Nike Legend

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Stavsettninku
Slapp
banner