Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina á Fótbolti.net og að þessu sinni er það Gunnar Kristjánsson leikmaður KR. Gunnar sem er aðeins 19 ára er mjög fljótur og fjölhæfur leikmaður en hann kom við sögu í fimmtán leikjum KR í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð.
Gunnar á landsleiki að baki fyrir bæði U-17 og U-19 ára lið Íslendinga en við skulum kíkja á hina hliðina á honum.
Fullt nafn: Gunnar Kristjánsson
Gælunafn: Gunni litli, Gunni Kri,
Aldur: 19 ára 2. mars
Giftur / sambúð? Makalaus
Börn: Engin en vonandi síðarmeir
Hvað eldaðir þú síðast? Ha, neinei ekkert þannig. Nóg af kokkum á heimilinu.
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperóni og extra ost.
Hvernig gemsa áttu? Sony Ericsson eitthvað. Er ekki inni í þessum
tæknimálum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Sopranos og enski boltinn
Besta bíómyndin? Hugrakkt hjarta ( Braveheart) og LOTR 123
Hvaða tónlist hlustar þú á? Breskt popp.
Uppáhaldsútvarpsstöð: KR útvarpið fm 983
Uppáhaldsdrykkur Það er auðvitað Pepsí Max
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Já hef alltaf haft gamla Fowler the prowler bolinn með mér í töskunni.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Skora á hann og klappa svo á kollinn á honum
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Chelsea, Fram og FH.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Fowler og Einsi Dan.
Erfiðasti andstæðingur? Baldur Aðalsteins fór eitt sinn illa með mig en gerir það ekki aftur.
Ekki erfiðasti andstæðingur? Matti Villhjálms í FH
Besti samherjinn? Gaman að spila með Emma ( Th. Elmar Bjarnason í Celtic) í yngri flokkunum
Sætasti sigurinn? Úrslitaleikurinn á Shellmótinu. Unnum Fylki 3-2
Mestu vonbrigði? Að vinna ekki Íslandsmótið í öðrum flokki í fyrra.
Uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool engin spurning
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Steve G og Einsi Dan áður en hann fór í Gróttu.
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Þórólfur Beck
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Hann heitir Mías og er í 8. flokki KR. Hann er gríðarlegt efni.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn ídeildinni? Hér og nú strákurinn Skúli Jón Friðgeirsson
Fallegasta knattspyrnukonan? Embla Grétarsdóttir KR ingur
Grófasti leikmaður deildarinnar? Bjarnólfur Lárusson. Gott að hafa hann í sínu liði.
Besti íþróttafréttamaðurinn? Höddi Magg er snillingur þegar hann er að lýsa Liverpool leikjum.
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Þeir eru allir ágætir
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Það er Atli Jónasson markmaður
Hefurðu skorað sjálfsmark? Bara í bekkjarleik í grunnskóla.
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Gerði það þegar ég var yngri.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Þegar ég var 16 ára og spilaði á móti Örgryte í Egilshöllinni.
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Klassa síða.
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Á hverjum degi.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Að það megi spila leiki án legghlífa.
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Oasis eða Greenday
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hita upp.
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Erfitt að gera upp á milli Einsa Dan og Steina Gísla
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Anfield
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Mjög fljótur
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Steven Gerrrard án efa.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Maður reynir að vera inni í sem flestum.
Hver er uppáhalds platan þín? Núna hlusta ég mikið á American idiot með Greenday en annars á ég ekki uppáhaldsplötu
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Liverpool- Fulham í febrúar á síðasta ári
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Misjafnt. Núna á ég Nike, adidas og le coq.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Eðlis- og efnafræði.



