Danski framherjinn Allan Dyring gekk í dag til liðs við FH og gerði við þá tveggja ára samning en FH kaupir hann frá danska félaginu Fredericia þó kaupverð hafi ekki verið gefið upp. Hann er 26 ára gamall framherji og heimildarmenn okkar sem þekkja til hans telja að hann muni koma verulega á óvart í sumar.
Dyring þekkir Allan Borgvardt og Tommy Nielsen sem spiluðu með FH undanfarin ár og hafði heyrt góða hluti af landinu og félaginu sem hann er að ganga til liðs við.
Dyring þekkir Allan Borgvardt og Tommy Nielsen sem spiluðu með FH undanfarin ár og hafði heyrt góða hluti af landinu og félaginu sem hann er að ganga til liðs við.
,,Ég hef heyrt frá Allan og Tommy um Ísland og félagið. Fyrstu kynni mín af landinu eru mjög góð en ég hef bara verið hérna í tvo daga og veit ekki svo mikið um landið. En þetta er bara nýtt ævintýri fyrir mig og litlu fjölskylduna mína," sagði Allan Dyring í samtali við Fótbolta.net í dag.
Allan er ætlað það hlutverk að leysa það skarð sem hinn magnaði Allan Borgvardt skildi eftir sig í framlínunni hjá FH er hann fór í norsku deildina. Þeir tveir eru hinsvegar mjög góðir vinir.
,,Ég hef þekkt Allan [Borgvardt] frá því við vorum þrettán ára gamlir og við höfum verið mjög góðir vinir síðan þá. Við spiluðum saman þegar við vorum 14, 15 og 16 ára hjá Esjberg en þá flutti hann til Árósa og ég flutti svo stuttu síðar svo við spiluðum ekki aftur með sama liði."
,,Ég sá hann aldrei spila með FH. Ég heimsótti hann aldrei hingað til Íslands og hafði því aldrei komið hingað fyrr en ég kom hingað fyrir tveimur dögum."
Eins og áður sagði á Allan Dyring að leysa stöðu Borgvardt í liði Íslandsmeistaranna og okkur lék forvitni á að vita hver væri munurinn á þeim sem leikmönnum.
,,Hann getur ekki gert neitt með hausnum.....hehe nei ég er að grínast. Hann er meira leikmaður sem getur rakið boltann smá og gert svo eitthvað en ég get stundum gert það en ég er meira svona leikmaður með mikinn leikskilning og sé oft eitthvað á undan varnarmönnunum og skora mörk og gef margar stoðsendingar. Ég held að við séum ekki samskonar leikmenn en þó líkir."
Við spurðum Allan Dyring hvort hann ætlaði ekki samt að skora miklu fleiri mörk en Borgvardt?
,,Auðvitað geri ég það. Ég spilaði í gær hérna í húsinu (Risanum) og það eru margir góðir leikmenn hérna. Ég hlakka mikið til mótsins."
,,Já menn verða að segja eitthvað svona því hann er eiginlega eins og ég. En utan vallar erum við alveg eins og við náum mjög vel saman. Þegar ég var yngri fékk ég mikið af gulum og rauðum spjöldum en nú er ég orðinn faðir svo ég er ekki svona núna."
Annar danskur leikmaður, Peter Matzen gekk í raðir FH í dag en Allan þekkir Matzen líka og hefur spilað með honum í dönsku deildinni. Við báðum hann að lýsa þeim leikmanni fyrir okkur.
,,Ég spilaði með honum í Århus í tvö ár. Hann er með mikinn leikskilning og góða tækni og öskrar mikið á vellinum, er leiðtogi. Alveg eins og Tommy [Nielsen] er rólegur leikmaður getur Matzen líka spilað fram á völlinn og er með góða tækni því hann hefur spilað sem miðjumaður líka. Hann getur spilað boltanum mjög vel og er mjög góður leikmaður sem getur spilað í mörgum stöðum."
Sjálfur spilar Dyring hinsvegar aðeins framherjastöðuna en hann hélt áfram.
,,Ég hef spilað á miðjunni líka en undanfarin fimm ár hef ég sagt þjálfurunum að ég vildi spila frammi því ég vil njóta leiksins og ég nýt hans frammi. Ég hef spilað þetta kerfi [4-3-3 sem FH spilar] líka í Danmörku og hef bæði spilað þá frammi og líka sem framliggjandi miðjumaður. Undanfarin tvö ár hef ég spilað í þessu kerfi en líka með tvo framherja."
Hjá FH mun Dyring spila númer 11. Jón Þorgrímur Stefánsson lék með það númer í fyrra en er nú genginn í raðir HK. Allan Borgvardt lék númer 22 undanfarin ár en afhverju valdi Dyring númer 11?
,,Þetta var bara númer sem var laust fyrir mig svo ég tók það. Það var engin sérstök ástæða. Ég hef spilað númer átta hjá síðustu tveimur félögunum sem ég hef verið hjá en nú er komið að Íslandi, ný ævintýri og nýtt númer."


