Danski varnarmaðurinn Peter Matzen skrifaði í dag undir eins árs samning við Íslandsmeistara FH og mun hitta nýja liðsfélaga sína í Portúgal seinni partinn á laugardag en þangað er FH að fara í æfingaferð og mætir meðal annars sænsku meisturunum í Djürgaarden á þriðjudag.
Við höfðum samband við Matzen í dag og ræddum við hann um félagaskiptin en hann kemur frá danska félaginu Vejle.
,,Ég hlakka til að hitta strákana og hlakka til að spila með FH, þetta er spennandi fyrir mig," sagði Matzen í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Ég hef bara verið þarna í tvo daga en þetta er góður staður og gott félag með marga góða leikmenn. Það er soldið kalt á Íslandi en ég hef heyrt að það sé gott veður á sumrin. Ég hef líka heyrt að það sé bjart allan sólarhringinn á sumrin og ég hlakka til að sjá það."
Matzen kom hingað til lands á reynslu hjá Keflavík fyrst um sinn og félagið vildi semja við hann. Hann kom hinsvegar aftur og æfði þá með FH og ákvað að velja að taka boði þeirra. Við spurðum hann afhverju FH hafi orðið fyrir valinu.
Matzen getur spilað sem bakvörður, miðvörður eða miðjumaður en FH-ingar fá hann til að leysa skarðið sem Auðun Helgason skyldi eftir sig en Auðun missir af öllu tímabilinu vegna krossbandameiðsla.
,,Ég býst við að verða miðvörður hjá FH með Tommy Nielsen. En ég veit það ekki, kannski spila ég annars staðar. Staðan sem ég er bestur í er í vörninni en mér finnst gaman að spila á miðjunni og nýt þess líka."
,,Ég hef spilað með Tommy fyrir nokkrum árum og hef talað öðru hvoru við hann eftir að hann fór til Íslands svo ég veit eitthvað frá honum en ég vissi ekki mikið um íslenskan fótbolta áður en ég kom þangað," sagði Matzen við Fótbolta.net í dag en okkur lék forvitni á hvort danskan yrði töluð í miðri vörninni hjá FH í sumar?
,,[Mikill hlátur] nei ég held það ekki. Ég held að við tölum ensku, eða bara íslensku en hinir leikmennirnir verða að skilja okkur svo ég veit ekki ennþá."
Allan Dyring sóknarmaður gekk einnig í raðir FH í dag en hann spilaði með Matzen hjá Vejle í dönsku deildinni. Við spurðum Matzen að lokum út í Dyring: ,,Hann er góður leikmaður. Hann er alltaf að berjast og hleypur mikið. Hann er mjög góður leikmaður."




