lau 29.apr 2006 05:28 Magnús Már Einarsson,
Skíðadrottning og landsliðsk. í hokkí með Magna
Dagný Linda hefur skellt sér í takkaskóna.
Mynd: NordicPhotos
Lið Magna frá Grenivík verður með lið í fyrstu deild kvenna í sumar og mun liðið leika í B-riðli ásamt fimm öðrum liðum en fjögur þeirra koma af Austurlandi.

Það er ekki hægt að segja annað en að leikmenn liðsins komi úr ólíkum íþróttum. Skíðadrottningin Dagný Linda Kristjánsdóttir sem er margfaldur íslandsmeistari og hefur hún meðal annars farið á ólympíuleikana.

Samkvæmt heimasíðu liðsins hafa Birna Baldursdóttir og Jónína Margrét Guðbjartsdóttir landsliðskonur í hokkí einnig verið að mæta á æfingar sem og Inga Dís Sigurðardóttir fyrirliði KA í handbolta og verður gaman að sjá lið Magna í fyrstu deild kvenna í sumar og hvernig þessum sterku íþróttakonum mun vegna í takkaskónum.

Nýjustu fréttirnar