Furðulegar hliðar fótboltans
Í janúarmánuði árið 2005 gerðist óvenjulegt atvik í leik í utandeildinni á Englandi þegar markvörður annars liðsins var einn á vellinum í tíu mínútur án þess að átta sig á að dómarinn hafði flautað leikinn af og allir leikmennirnir voru komnir inn í búningklefa.
Mikil þoka var á vellinum í leik Stocksbridge Steels gegn Witton Albion sem fór fram nærri Sheffield á Englandi. Richard Siddall var í marki fyrrnefnda liðsins og sökum þoku sá hann ekkert út úr markteig sínum. Þegar dómari leiksins sá að vonlaust væri að spila leikinn lengur eftir hálftímaleik vegna þoku fóru allir leikmenn liðanna í búningsklefa nema Siddall sem áttaði sig ekki fyrr en nokkrum mínútum síðar þegar áhorfandi benti honum á að búið væri að flauta af.
,,Ég hafði ekki hugmynd. Ég stóð bara þarna og beið eftir að sjá einhvern leikmann koma í gegnum þokuna,” sagði Siddell eftir leikinn.
Wayne Biggins þjálfari hans sem á árum áður lék með Sheffield Wendnesday sagði: ,,Við vorum í búningsklefanum en Richard hélt að við værum enn að leika á vellinum. Engan grunaði hvar hann var þar til við fréttum af því að hann væri ennþá á vellinum.”
Furðulegar hliðar fótboltans er liður hér á Fótbolta.net þar sem ein óvenjuleg saga tengd fótbolta er sögð alla virka daga. Við tökum ábendingum um slíkar sögur fegins hendi en bendum fólki þá á netfangið [email protected].



