Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 01. júní 2006 10:00
Magnús Már Einarsson
Diop er tröllkarl: Heiðar Helguson svarar lesendum
Heiðar Helguson með spurningarnar.
Heiðar Helguson með spurningarnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir nokkrum vikum gafst lesendum tækifæri á að senda inn spurningar á Heiðar Helguson framherja Fulham. Svör hans við þessum spurningum eru hér að neðan en ótal spurningar bárust. Heiðar gat ekki svarað þeim öllum og þá eru nokkrir sem spurðu sömu spurningarinnar.

Meðal þess sem Heiðar er spurður út í er tröllkarl, matarræði, Silvíu nótt, bekkpressu, pylsur, handbolta, hákarl, nammi, rapp og Nintendo tölvu. Kíkjum á svör Heiðars við þessum spurningum.


Garðar Benedikt Sigurjónsson, 13 ára, Garðabær
Ertu bílakarl og ef svo er hvernig bíl áttu og hvernig bíl hefur þig alltaf langað mest í?
Ég er ekkert voðalega mikill bílakall. Mér finnst gaman að flottum bílum en ég á engan sérstakan uppáhaldsbíl. Allir jafn flottir.


Konráð Gíslason, 35 ára, Akureyri
Hver á ljótasta bílinn í Fulham-liðinu?
Mortiz Volz held ég. Hann er ekkert ljótur, hann er á Golf.


Gunnar Örvar Stefánsson, 12 ára, Hafnarfjörður
Fílarðu Silvíu Nótt?
Ég hef aldrei nokkurn tímann séð hana. Ég hef séð myndir af henni en ekkert live.


Kristján Ásgeirsson, 34 ára, Grindavík
Er það satt að þú sért með 11 tær?
Nei það er ekki satt


Agnar Daði Kristjánsson, 6 ára, Húsavík
Er Papa Diop tröllkarl?
Já hann er það


Ólafur Guðnason, 18 ára, Bolungarvík
Mig hefur alltaf langað til þess að vita það hvað þú sagðir við Oliver Kahn hérna á Laugardalsvellinum í leiknum Ísland - Þýskaland þegar þið öskruðuð á hvorn annan "face to face" og á hvaða tungumáli töluðuð þið?
Ekki neitt, ég öskraði bara á hann. Ég veit ekki hvað þetta tungumál kallast, bara alþjóðlegt.


Birgir Már Hannesson, 28 ára, Reykjavík
Er það rétt að þú hafir verið kallaður Tumi í æsku?
Já það er rétt


Sölvi Andrason, 11 ára, Akureyri
Áttu konu eða börn?
Já bæði. Tvö börn, tvo stráka.


Thelma Rut Eigilsdóttir, 17 ára, Reykjavík
Sæll, þar sem ég veit að þú ert giftur, þá vildi ég vita..áttu yngri bróður?
Nei ég á ekki yngri bróður.


Baldvin Helgi Gunnarsson, 14 ára, Skagafjörður
Varstu einhvern tímann rappari?
Nei sem betur fer ekki.


Milos Jugovic, 14 ára, Grindavík
Hvað færðu mikið í vikulaun og er bónus fyrir að skora mark?
Kemur þér ekki við.


Viktor Örn Guðmundsson, 17 ára, Hafnarfjörður
Hvað færðu þér á pylsuna þína?
Allt


Sighvatur H. Arnmundsson, 27 ára, Reykjavík
Telur þú að einhvern tíma muni fæðast maður sem getur synt hraðar heldur en hákarl?
Nei


Árni Már Hjartarsson, 15 ára, Reykjavík
Spilarðu á eitthvað hljóðfæri?
Reyni að spila á gítar en er ekkert voðalega góður.


Ásgeir Daði Þórisson, 12 ára, Reykjavík
Hvað tekurðu í bekkpressu?
Hef ekki hugmynd um það. 90 kíló eða eitthvað.


Alex Birgir Gíslason, 12 ára, Hafnarfjörður
Þegar þú varst yngri hvað annað langaði þig að verða þegar þú mundir verða stór?
Allt á milli himins og jarðar. Það var alltaf eitthvað nýtt í hverri viku.


Svavar Gunnarsson, 19 ára, Reykjavik
Í hvernig skóm spilarðu og hvað ferðu með mörg pör á tímabili?
Ég er í Reebok og ætli ég fari ekki í svona sex.


Kristleifur Trausti, 25 ára, Reykjavík
Ferðu oft í ljós og ertu góður að breaka?
Nei og nei


Davíð Helgi Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Hvað ertu með í forgjöf?
Ég er með 14


Pálína Axelsdóttir, 14 ára, Sveit.
Hvað er asnalegasti hluturinn sem þú hefur áritað?
Ætli það séu ekki hendurnar á fólki, sem það þvær svo bara af sér.


Aðalsteinn Ólafsson, 21 ára, Reykjavík
Áttir þú Nintendo tölvu einhverntímann?
Hvaða leikur var í uppáhaldi? Ég átti aldrei nokkurntímann Nintendo tölvu en ég átti Sinclair Spectrum.


Reynir Þór Garðarsson, 16 ára, Hveragerði
Á hvaða tungumáli hugsarðu þegar þú ert að spila?
Íslensku


Hrannar Jónsson, 32 ára, Reykjavík
Hefurðu lent í því að vera flekaður af drukkinni eiginkonu annars samherja við fögnuð eftir góðan leik?
Nei því hef ég ekki lent í.


Ágúst Bent Jensson, 24 ára, Hafnafjörður
Heldur þú að þú myndir taka Herminator (innsk Fótbolti.net: Hermann Hreiðarsson) í slag?



Hannes Guðmundsson, 12 ára, Kópavogur
Hver er uppáhalds hljómsveitin þín?
Metallica


Karen Lind Ólafsfdóttir, 16 ára, Kópavogur/Grindavík
Skiptir matarræði og svefn miklu máli?
Mjög miklu máli já.


Siguróli Teitsson, 18 ára, Hrísey
Geturu sagt mér frá matarræðinu þínu yfir einn dag. hvað færðu þér í morgunmat, hádegismat og kvöldmat og hvað færðu þér á milli mála?
Ég byrja yfirleitt á hafragraut, Cheerios eða jógúrt. Svo fer ég á æfingu og það fer eftir því hvað er í matinn upp á æfingasvæði, það er yfirleitt pasta, kjöt eða eitthvað hollt. Svo fer það bara eftir því hvað er til heima. Við höfum oft fisk og svo er einstaka sinnum pöntuð pizza og svona.


Einar Brandsson, 13 ára, Árbær
Ertu með six pack?
Ekki núna en venjulega já.


Egill Daði Angantýsson, 23 ára, Akureyri
Sæll Heiðar, nú hef ég verið að æfa frá sex ára aldri og þótti nokkuð góður þangað til ég kynntist áfengi og djammi. Hvað er best að gera til þess að sleppa við þá löngun að taka djammið fram yfir fótbolta?
Allt er gott í hófi en reyna að minnka djammið.


Jón Daði Böðvarsson, 13 ára, Selfoss
Hvernig var tilfiningin þegar þér var boðið að fara til enska liðsins Fulham?
Mjög góð. Þetta var eitthvað sem mig var búið að dreyma um.


Sigurður Einar Traustason, 15 ára, Reykjavík
Hvers vegna valdiru Fulham? Var það spennandi kostur?
Af því sem ég hafði að velja úr fannst mér það mest spennandi og það var líka í kringum London þannig að við þurftum ekki að flytja langt.


Páll Eyjólfsson, 15 ára, Fljótsdalshérað
Voru það mikil viðbrigði að fara til Fulham frá Watford? eða var það öðruvísi að spila þar?
Það voru ekki svo rosalega mikil viðbrigði að koma sér fyrir af því að maður var búinn að vera í Englandi í sex ár eða eitthvað en fótboltalega séð var þetta allt öðruvísi og það tók smá tíma að venjast en þetta er allt saman komið núna.


Magnús Sigurbjörnsson, 18 ára, Reykjavík
Þegar þú labbaðir fyrst inná völlinn þar sem völlurinn var troðinn stuðningsmönnum.. hvað hugsaðiru?
Ekkert held ég.


Ísak Bollason, 13 ára, Hafnarfjörður
Borðar þú mikið nammi?
Já ég borða smá íslenskt nammi þegar að ég er á Íslandi og þegar að einhver er að koma í heimsókn. Annars yfirleitt ekki.


Alexander Áki Felixson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hvað fannst þér um að vera leikmaður mánaðarins hjá Fulham?
Mjög gaman.


Kristinn Ingi Jónsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Er Chris Coleman góður þjálfari?
Já hann er mjög fínn


Pétur Jónsson, 12-13 ára, Seltjarnarnes
Hvernig er mórallinn í liðinu?
Mórallinn er mjög góður miðað við að það er svolítið mikið af útlendingum. Þegar að svoleiðis er getur það verið svolítið annaðhvort eða en hann er mjög góður.


Jósef Agnar Róbertsson, 27 ára, Kópavogur
Hvernig meturðu möguleikann á að brjótast alveg inn í liðið í framtíðinni og við hvern ertu mest í sambandi í liðinu?
Ég myndi segja að möguleikarnir væru mjög góðir en ætli ég sé ekki í mestu sambandi við Radzinski og Mark Crossley.


Elvar Stefánsson, 20 ára, Húsavík
Hver er herbergisfélagi þinn á keppnisferðalögum og geturðu sagt okkur eitthvað um hans eiginleika?
Það virðist aldrei vera sá sami, það er alltaf einhverjir nýjir. Ég held ég hafi verið með 5-6 mismunandi herbeggisfélaga í landsliðinu og Fulham þannig að það er of mikið til að telja upp.


Guðmundur Helgi Aðalsteinsson, 17 ára, Húsavík
Er einhver hommi í Fulham?
Ekki svo ég viti.


Brjánn Jóns, 17 ára, Mikliskógur
Hvernig hefur lífið þitt breyst síðan þú fórst i Fulham? Er það miklu betra en Watford?
Nei alveg eins.


Gunnar Örn Gunnarsson, 13 ára, Húsavík
Hvort er skemmtilegra að spila með Fulham eða Watford?
Fulham


Ívar Örn Baldurssoon, 15 ára, Rangárþing Ytra
Ég vil spurja þig af því þú ert að spila frábærlega fyrir Fulham og varst kosinn 3 besti í mars minnir mig og samt ertu látinn á bekkinn eru eitthver ósætti hjá þér og Coleman eða?
Nei ekkert.


Peter K Sigfússon, 18 ára, Reykjavík
Er ekki mikill munur á 1. Deildinni og úrvaldsdeildinni ef svo er hvaða munur er það?
Það er svolítið mikill munur. Munurinn sem ég finn mest fyrir er að allir leikmennirnir eru aðeins sneggri og aðeins téknískari.


Zlatko Krickic, 14 ára, Kópavogur
Hvernig er að vera í Fulham?
Mjög gaman.


Emil Alfreð Emilsson, 16 ára, Hafnarfjörður
Hver er leiðinlegastur og skemmtilegastur í Fulham?
Ég vil ekki svara hver er leiðinlegastur en ég myndi segja að Mark Crossley væri skemmtilegastur.


Sigurvin Helgi Reynisson, 10 ára, Árbær
Ert þú bestur í Fulham?
Verð ég ekki að segja já? Nei nei ætli það séu ekki Boa (Luis Boa Morte) og Steed (Malbranque) sem eru bestir.


Emil Alfreð Emilsson, 16 ára, Hafnarfjörður
Er einhver leikmaður í Fulham sem er hataður af flest öllum leikmönnunum?
Nei


Sindri Kristjánsson, 14 ára, Patreksfjörður
Hvernig gengur að aðlagast í Fulham og hver er harðastur fyrir utan þig í liðinu?
Það gengur mjög vel að aðlagast og hefur gengið hingað til. Ætli það sé ekki Boa Morte.


Kristján Arnar Kristófersson, 9 ára, Grundó
Af hverju ertu ekki í byrjunarliðinu þú átt að vera þar?
Ég veit það ekki. Spurðu Chris Coleman.


Jóhannes Baldvin Pétursson, 18 ára, Hafnarfjörður
Býrðu langt frá heimavelli Fulham? Hvað tekur u.þ.b. langan tíma að komast á æfingar?
Það tekur mig 25 mínútur á æfingar og svona 35 mínútur á völlinn.


Ívar Björnsson, 15 ára
Ert þú vinur Collins John?
Við erum bara félagar alveg eins og allir aðrir í liðinu.


Hákon Guðjónsson, 16 ára, Ísafjörður
Er mikil samkeppni milli framherja í Fulham t.d. milli þín og Collins John?
Já það vilja náttúrulega allir spila. Ég held að það sé bara holl sú samkeppni þarna á milli en við erum engir óvinir.


Þórey Hólm Heimisdóttir, 17 ára, Akranes
Hvað æfið þið oft á dag og hversu lengi?
Einu sinni í svona einn og hálfan.


Valur Páll Eiríksson, 12 ára, Reykjavík
Hvað gerið þið helst á æfingum?
Það fer bara eftir því hvernig síðasti leikur fór. Við spilum nú yfirleitt eitthvað hvort sem það er allan tímann eða bara í lokin.


Kristján Aðalsteinsson, 23 ára, Akureyri
Ef þú myndir fá þær fréttir að Alex Ferguson vildi fá þig til Manchester United, myndiru hafa áhuga?



Haraldur Geir Þorsteinsson, 20 ára, Garðabær
Hvaða leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hefur reynst þér erfiðastur viðureignar?
Ledley King (Tottenham)


Haraldur Geir Þorsteinsson, 20 ára, Garðabær
Áttiru þér uppáhaldslið í úrvaldsdeildinni áður en þú fórst til Fulham?
Já, Liverpool


Örn Rúnar Magnússon, 15 ára, Hafnarfjörður
Hver er lykillinn að þessari velgengni hjá þér uppá síðkastið?
Ég veit það ekki. Hef ekki hugmynd um það, bara spila vel.


Arnór Halldórsson, 18 ára, Reykjavík
Með hvaða liða byrjaðiru að æfa með?
Dalvík


Kristinn Ólafsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hver finnst þér besti markmaður í heimi?
Petr Cech


Jóhann Guðmundsson, 13 ára, Selfoss
Til hvaða liðs myndiru fara til ef þú mættir ráða?
Þá myndi ég líklegast fara í Bayern Munchen. Ég veit ekki af hverju en ég hef alltaf einhvernegin haldið upp á þá.


Magnús Magnússon, 10 ára, Þórshöfn
Hefurðu áhuga að kíkja til annars liðs sem þú verður fastamaður og spilar mikið meira og verður betri leikmaður og vera til dæmis hjá liðum á Spáni, Ítalíu Þýskalandi breyta aðeins til?
Jú jú ef það kæmi upp en það er rosalega gott að vera í Englandi og þar sem ég er. Mér líður rosalega vel þar.


Magnús Stefánsson, 17 ára, Kópavogur
Með hvaða liði í ensku deildinni hélstu þegar þú varst lítill, og svo á hvaða velli í Englandi finnst þér skemmtilegast að spila á(fyrir utan heimavöll Fulham)?
Liverpool og Fulham


Jón Baldvinsson, 30 ára, Garðabær
Voru ekki einhverjar líkur á því að þú færir til Stjörnunar þegar að þú fluttir í bæinn af norðan? Ég man að hafa séð þig á nokkrum æfingum með þeim.
Já það var. Ég var 14 ára eða eitthvað en aðeins of ungur til að fara að flytja í bæinn samt.


Gunnar Már Harðarson, 18 ára, Kópavogur
Hvernig er að spila með og á móti svona góðum leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni?
Mjög gaman.


Bjarni Bjarnason, 30 ára, Reykjavík
Hver er erfiðasti leikmaður sem þú hefur mætt hingað til í ensku úrvalsdeildinni? Og hvaða lið hefur verið erfiðast?
Ledley King og Arsenal.


Daði Ólafsson, 12 ára, Árbær
Hver er besti varnarmaðurinn sem hefur dekkað þig?
Ledley King


Elvar Stefánsson, 20 ára, Húsavík
Hvað finnst þér um Peter Crouch, góður framherji eða slæmur?
Mér finnst hann mjög góður.


Elvar Stefánsson, 20 ára, Húsavík
Hver finnst þér mest pirrandi knattspyrnumaðurinn í ensku deildinni í dag?
Ég held að það sé bara eitt svar við þessu. Robbie Savage held ég, nokkuð ljóst.


Elvar Stefánsson, 20 ára, Húsavík
Heldurðu að Michael Brown hafi ætlað að fótbrjóta Sean Davis í leiknum gegn Portsmouth?
Nei.


Birgir Daði Jóhannsson, 18 ára, Kópavogur
Hvað gerir þú til þess að auka stökkkraftinn svona gífurlega?
Ég veit það ekki. Ég var þó í frjálsum þegar ég var ungur. Ég hef aldrei æft það neitt sérstaklega.


Róbert Blanco, 16 ára, Reykjavík
Hvað varstu gamal þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta?
Sex eða sjö, er ekki alveg viss.


Grétar Óskarsson, 14 ára, Reykjavík
Hvernig er tilfinningin að skora fyrir framan 60 þúsund manns?
Mjög góð, rosalega góð.


Kristján Gunnarsson, 26 ára, Vestmanneyjar
Hvað eru 3 skemmtilegustu útivellirnir sem þú hefur spilað á?
Old Trafford, Anfield og St' James Park.


Aron Örn Þórarinsson, 21 árs, Kópavogur
Hvern hefur þér mest langað til að berja í leik? Hvað er það grófasta sem þú hefur gert við annan leikmann?
Ég man ekki eftir í augnablikinu að hafa langað að lemja einhvern. Veit ekki.


Jón Fannar Gunnarsson, 19 ára, Akureyri
Við vinirnir erum oft að rífast um það hvar er mesta stemningin á leikjum á Englandi þú hefur væntanlega komið ef ekki spilað á flestum stóru völlunum þannig að efa þú vildir nú svara því HVAR ER MESTA STEMNINGIN OG LÆTIN?
Ég myndi segja St' James Park. Það er mesti hávaðinn þar.


Birkir Helgason, 22 ára, Vopnafjörður
Hefuru spilað í ljónagryfjunni á Vopnafirði?
Nei ég held ekki.


Eiður Ísak Hafsteinsson, 18 ára, Akureyri
Er erfitt að vera í fótbolta?
Getur verið það þegar að illa gengur.


Aron Johannsson, 15 ára, Reykjavík
Hvað er flottasta mark sem þú hefur skorað a ferlinum?
Ég skoraði með hjólhestaspyrnu fyrir Watford. Síðasti leikurinn þegar að við vorum í úrvalsdeildinni.


Birgir Freyr Árnason, 15 ára, Akureyri
Hvað hefur skorað mörg mörk á ferlinum þínum og hver er besti samherji sem þú hefur haft?
Ætli ég hafi ekki skorað rúmlega 100 mörk sem atvinnumaður. Besti samherji myndi ég segja Steed (Malbranque) og Rúnar Kristins.


Haraldur Jón Jóhannesson, 24 ára, Ísafjörður
Hræðist þú einhvern varnarmann?
Já þessa stóru og fljótu.


Erlingur Bergmann Karlsson, 17 ára, Reykjavík
Ferðu til stærra lið eftir þetta tímabil? Hafa einhver lið sett sig i samband við þig?
Nei


Hafsteinn Briem, 15 ára, Kópavogur
Þegar þú varst yngri, æfðiru aukalega fyrir utan æfingarnar hjá liðinu þínu? Ef svo er, hvernig þá?
Ég vildi óska þess að ég gæti svarað þessu já en nei. Maður var alltaf í fótbolta bara þegar maður var ungur. Ekkert að æfa neitt auka, bara að leika sér.


Bjarki Guðjónsson, 28 ára, Reykjavík
Í hvaða röð hefðirðu helst viljað spila fyrir stærstu 4 liðin á Englandi (Chelsea, Man Utd, Liverpool og Arsenal)? (s.s. Hvaða liði helst og hverju síst?)
Liverpool, Manchester, Arsenal, Chelsea.


Davið Hilmar Haukdal Blessing, 13 ára, Hafnarfjörður
Heldurðu að ef maður leggur sig 200% fram og þjálfar og æfir sig eins og maður getur getur maður orðið eins langt og þú? Einnig hvernig er að vera frá svona litlum bæ og komast svona langt?
Það er það eina sem þú getur gert. Ef það tekst ekki þá tekst það ekki en annars ertu ekki að gefa þér neinn möguleika. Mjög gaman.


Davíð Þór Gunnarsson, 13 ára, Reykjavík
Hver finnst þér besti knattspyrnumaður í heimi?
Ég myndi segja Thierry Henry.


Óttar Bjarni Guðmundsson, 16 ára, Reykjavík
Hver er besti miðjumaðurinn sem þú hefur spilað með?
Steed (Malbranque) og Rúnar (Kristinsson).


Guðmundur Oddur Eiríksson, 12 ára, Akureyri
Hvað þurfa þeir sem eru að fara út á reynslu mest að sanna fyrir þjálfaranum?
Ég myndi segja að það væri aðallega tveir hlutir, hugarfar og svo náttúrulega þarftu að kunna eitthvað í fótbolta. Af minni reynslu ef þú ert góður í fótbolta en ekki með rétta hugarfarið þá kemstu ekki langt.


Hrannar Guðmundsson, 13 ára, Mosfellsbær
Hver er erfiðasti heimavöllurinn?
Arsenal


Hjörtur Hermansson, 11 ára, Reykjavík
Hvað er það sem gerir mann að góðum fótbolta manni?
Hugarfar, vinna vel og nenna að æfa.


Davíð Husby, 31 árs, Reykjavík
Nú ertu þekktur fyrir að vera harður í boltanum, en kemur það aldrei fyrir að þú ferð viljandi örlítið harkalega í menn?
Nei


Davíð Ben Guðmundsson, 18 ára, Reykjavík
Nú er þitt gamla félag Watford í harðri baráttu um að komast í úrvalsdeildina (Komið í úrvalsdeildina þegar að nú er komið við sögu), hefðirðu verið um kyrrt hjá þeim ef þú hefðir vitað að þeim myndi ganga svona vel í vetur?
Það er voða auðvelt að hugsa svona eftir á en ég sé ekki eftir neinu. Þannig að ég segi nei.


Agnar Daði Kristjánsson, 6 ára, Húsavík
Hvar hefur verið best að vera í boltanum?
Allir þessir þrír staðir (Lilleström, Watford, Fulham) sem ég hef verið á hafa allir haft sína kosti þannig að okkur hefur liðið vel á öllum stöðum.


Magnús Þór Gunnarsson, 12 ára, Hafnarfjörður
Ertu betri en Eiður Smári?
Ne


Kristinn Geir Pálsson, 26 ára, Reykjavík
Hvað finnst þér gaman að gera fyrir utan fótboltann? Áttu einhver hobbý?
Spila golf.


Tara Björt Guðbjartsdóttir, 19 ára, Akureyri
Hvaða sóknarmaður finnst þér vera besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, og hvaða varnarmaður?
Thierry Henry og Ledley King.


Axel Axelsson, 16 ára, Mosfellsbæ
Tekur ekki á taugarnar að keppa í erfiðustu deild í heimi?
Það getur gert það þegar að illa gengur, þá er allt mjög erfitt en þetta er mjög auðvelt þegar maður er að vinna.


Ólafur Birgisson, 32 ára, Danmörk
Hvað finnst þér um menn sem falla og liggja sárir eftir þótt nánast ekki hafi verið komið við þá?
Þetta virðist vera hluti af leiknum í dag en þetta er náttúrulega ekkert gaman. Það gera þetta allir.


Arnar Skúli Atlason, 15 ára, Sauðárkrókur
Fórstu á reynslu til einhverra liða í útlöndum þegar þú varst ungur?
Ég fór í æfingaferð til Skotlands vorið áður en ég fór síðan út til Noregs. Ég fór til Preston sem er ekki í Skotlandi en ég fór samt þangað. Ég fór til Patrick Thistle og fór svo til Newcastle líka í viku.


Pétur Elíasson, 16 ára, Keflavík
Ég las í breskum fjölmiðlum í janúar eftir tapið hjá ykkur gegn Leyton Orient í enska bikarnum, að Chris Coleman stjói þinn hafi hótað leikmönnunum að einhverju tagi. En hefur Chris Coleman verið eitthvað reiður út í þig ef svarið er já hvað gerðiru af þér þegar að hann var reiðastur út í þig?
Ég hef sloppið hingað til. Hann hefur náttúrulega verði reiður út í tapleiki út í okkur alla en hann hefur aldrei tekið mig á teppið.


Hannes Lárus Hjálmarsson, 15 ára, Reykjavík
Á svipuðum aldri og ég er. Hvaða æfingar gerðiru fyrir utan æfingar með félagsliðinu? Ég er sjálfur alltaf úti að skokka til að halda mér í góðu formi og vill fá smá fjölbreytni í æfingarnar.
Ég myndi fara í boltaæfingar. Æfa tæknina. Þú getur alltaf hlaupið.


Herbert S. Egilsson, 16 ára, Húnavallasýsla
Ef maður vill verða Fótbolta stjarna eins og þú, hvar á maður að byrja? og hvað á maður að gera?
Æfa tæknina. Fótboltalegu hliðina ekki vera eitthvað að hlaupa endalaust og lyftingar. Gera tækniæfingar og ýmislegt.


Sigurður Einar Einarsson, 25 ára, VE
Ef þú mættir velja þér einn sóknarmann með þér. Hvern mundi þú velja og afhverju?
Thierry Henry. Þá þyrfti ég bara að flikka boltanum eitthvað og hann myndi alltaf ná honum.


Jökull Starri Hagalín, 10 ára, Reykjavík
Hver eru fimm lykilatriðin á bak við það að komast í fremstu röð sem knattspyrnumaður? Og þá meina ég knattspyrnulega séð eða íþróttalega séð?
Ég myndi segja vinna vel, hafa rétta hugarfarið, setja markmiðið hátt og vera samviskusamur.


Jóhannes Guðmundsson, 15 ára, Kelduhverfi
Hvaða lið vildu fá þig (síðasta sumar)?
Fulham, Wigan, Sunderland, Sheffield United og Leeds.


Sigurjón Björn Sveinsson, 40 ára, Hafnarfjörður
Er munur á leikskipulag í þeim leikjum sem þú ert látinn spila, en ef þú ert ekki?
Nei


Milos Jugovic, 14 ára, Grindavik
Ertu stressaður fyrir leiki og hverning losnaru við stress?
Ég er yfirleitt með fiðrildi í maganum þangað til að dómarinn flautar leikinn á og þá fer það því þá fer maður að hugsa um eitthvað annað.


Guðjón B.H, 22 ára, Hveragerði
Það er oft þannig að maður er misjafnlega upplagður fyrir leiki. Ég reikna með því að þegar maður er í atvinnumennsku í Englandi þá verði maður að vera alltaf vel upp lagður og til í leikina. Hvernig farið þið að því? t.d. mataræði. Er þetta 1 dagur sem það tekur að undirbúa sig eða er þetta 3 daga undirbúningur. Gaman væri að fá að vita hvernig þetta gengur allt fyrir sig.
Þetta er vikan. Ef þú ert að spila á laugardegi þá þarftu að borða mjög vel í 2-3 daga á eftir til að fylla á og þá er kominn miðvikudagur og þá þarftu að fara að hlaða. Það eru æfingar inn á milli og þú verður að borða mjög vel. Það er allt til að leyfa sér annað slagið eins og pizzur og svona.


Kristinn Örn Valdimarsson, 14 ára, Reykjavík
Hvernig gastu verið svona þolinmóður með það að fá tækifæri hjá Fulham?
Maður verður að bíta á jaxlinn. Sénsinn kemur.


Jón Arinbjörn Einarsson, 14 ára, Reykjavík
Ef þú hefðir ekki haldið áfram í fótbolta hvað myndir þú halda að þú værir að gera núna?
Ég held ég væri kokkur einhversstaðar af því að ég var kominn með vinnu (í því).


Haraldur Haraldsson, 21 ára, Seyðisfjörður
Hver er uppáhalds körfuboltamaðurinn þinn hér heima og úti?
Ég fylgist ekkert með körfuboltanum hér heima og fylgist ekkert með NBA heldur. Ég fylgdist mikið með NBA þegar að ég var hér heima en hef ekki fylgst með í nokkur ár. Segjum Dennis Rodman.


Hafsteinn Þórðarson, 15 ára, Reykjavík
Drekkurðu gos?
Já, diet Coke


Hrafnkell Orri Sigurðsson, 17, Reykjavík
Slærðu mikið í rassinn á öðrum leikmönnum?
Það kemur eflaust fyrir.


Finnur Kolbeinsson, 16 ára, Sauðárkrókur
Er eitthvað lið sem þú mundir ekki vilja spila með?
Nei, ég er tilbúinn að spila með öllu.


Sindri Már Kristinsson, 17 ára, Þingeyjarsýsla
Hver finnst þér flottust i íslenska kvennalandsliðinu?
Ég veit ekki einu sinni hverjar eru í kvennalandsliðinu.


Joran Veichenclausen Lingpechan, 11 ára, Reykjavík
Hvert er frægasta símanúmerið sem þú ert með í símanum þínum?
Boa Morte eða Eiður. Ég veit ekki hvor þeirra er frægari.


Haukur Darri Hauksson, 12 ára, Reykjavík
Hefur þú tekið eftir að fólk þekkir þig á götunum?
Það er ekkert voðalega mikið af því en það kemur fyrir.


Edmondo Steinar De Santis, 12 ára, Akureyri
Hver er mesti hozzlerinn í Fulham?
Liam Rosenior.


Stefán Óskar Gíslason, 15 ára, Vogar
Ætlaru að reyna að verða knattspyrnustjóri þegar þú hættir í boltanum?
Eins og staðan er í dag nei en maður veit aldrei.


Júlíus Blómberg, 23 ára, Hofsós
Ertu reiður útí William Gallas eftir atvikið á móti Chelsea um daginn?
Nei


Hilmar Ægir Þórðarson, 28 ára, Hafnarfjörður
Myndiru ganga til liðs við Liverpool ef þér byðist það tækifæri?



Einar Ólafur Pálsson, 18 ára, Reykjavík
Hvernig kemuru þér eiginlega í rétta skapið fyrir leiki?
Með því að undirbúa mig almennilega.


Atli Aðalsteinsson, 12 ára, Borgarnes
Eru flottari kvenmenn í Bretlandi en á Íslandi?
Nei


Stefán Óskar Gíslason, 15 ára, Vogar
Hvaða leikmanna leist þú upp til á þínum yngri árum?
Ég leit upp til Sigga Jóns og Rúnars (Kristins)


Jóhann Ingi Hjaltason, 15 ára, Breiðholt
Hver er/var átrúnaðargoðið þitt?
Ian Rush


Símon V Aðalsteinsson, 15 ára, Borgarfjörður
Hvaða varnarmaður af þessum er erfiðastur í enska boltanum?
Rio Ferdinand, Anton Ferdinand, John Terry eða Carragher?
Carragher eða Terry, annar hvor þeirra.


Vigdís Arna Magnúsdóttir, 12 ára, Akureyri
Var það einhver íþróttagrein sem þig langaði að æfa áður en þú endaðir í fótboltanum?
Ég var að æfa frjálsar og körfu. Hætti því þegar að ég flutti suður þegar að ég var sextán.


Ólafur Elí Newman, 13 ára, Keflavík
Hvaða stöðu spilaðir þú í yngri flokkum?
Ég var á miðjunni alltaf. Ég var frammi í sjötta held ég og svo fór ég á miðjuna.


Örn Erlingsson, 25 ára, Reykjavík
Hvaða liði hélstu með í æsku? og hvernig er að leika á móti því liði?
Liverpool, mjög gaman.


Bjarki Eiríksson, 22 ára, Flúðir
Ég er utan af landi og á bróður sem er mjög efnilegur fótboltamaður. Er það verra fyrir knattspyrnumann sem ætlar sér að komast áfram, að vera utan af landi og spila með litlum sveitaliðum heldur en að spila t.a.m. með einhverju Reykjavíkurliðanna eða af stórhöfuðborgarsvæðinu? Hafði það mikil áhrif á þig sem ungan knattspyrnumann að spila á Dalvík?
Ég held að það sé ágætt að spila úti á landi upp að vissum aldri. Þegar að komið er að meistaraflokknum en það fer eftir því í hvaða deild þeir eru en það hjálpaði mér að koma suður.


Daði Ólafsson, 12 ára, Árbær
Með hvaða liði myndir þú helst vilja spila með á Íslandi?
Ég veit það ekki. Ég á engin spes uppáhaldslið þó ég hafi spilað með Þrótti.


Baldvin Ágústsson, 15 ára, Reykjavík
Saknarðu einhverntíman tímanna í Þrótti? Ef svo er, hvers saknarðu?
Nei eiginlega ekki. Við fórum upp árið sem ég fer síðan út og það var mjög gaman. Það var meiriháttar.


Jósep Arnar Elvarsson, 78 ára, Dalvík
Sem gamall Dalvíkingur hvaða tilfinningar hefurðu til okkar skemmtilega samfélags og muntu einhvern tímann snúa aftur?
Mjög góðar. Það er fullt af familíunni minni sem býr þarna ennþá en ég efast um að ég muni nokkurntímann flytjast þangað aftur.


Steven Geir Helgason, 17 ára, Patreksfjörður
Það hefur margoft komið fram að þú sért frá Dalvík , litlu sveitarfélagi með um 2000 manna íbúafjölda. Spurning mín er, hvernig komstu þessum hæfileikum á framfæri, er ekki erfitt að búa í litlu þorpi og slá í gegn í erfiðustu deild heims?
Nei, unglingastarfið á Íslandi, sama hvar þú ert er rosalega gott en eins og ég sagði áðan að þegar að þú ert kominn á vissan aldur held ég að að sé betra að vera í Reykjavík.


Helena Jónsdóttir, 12 ára, Akureyri
Saknaru þess að eiga heima á Dalvík?
Nei


Jakob Leó Bjarnason, 20 ára, Kópavogur
Sem harður Þróttari þá langar mig bara að spyrja þig út í veruna hjá Þrótti, þú virtist mjög sáttur utan á við allavega en maður veit aldrei hvað gerist inn á við og hjá leikmanninum sjálfum og hvernig tilfinningar hefurðu til Knattspyrnufélagsins Þróttar?
Mjög góðar


Ingvi Hrafn Ingvason, 22 ára, Dalvík
Óraði það fyrir þér þegar þú varst yngri og varst að vinna í Blikanum að þú yrðir atvinnumaður?
Nei það get ég ekki sagt.


Narfi Jónsson, 20 ára, Borgarfjarðarsveit
Hefur það ekkert háð þér að vera frá Dalvík?
Ekki hingað til allavega.


Þorgeir Leó Gunnarsson, 14 ára, Reykjavík
Hvað telur þú vera langt í að íslenska karla landsliðið í knattspyrnu komist á HM?
Fjögur ár.


Jens Agnarsson, 51, Reykjavík
Það vakti athygli mína í fyrsta landsleik Íslands undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar hve liðið virkaði áhugalaust. Hvert er þitt álit á svona æfingaleikjum, erum við að fá eitthvað út úr þeim eða er þetta bara tímasóun (og peninga)?
Æfingaleikir geta verði mjög góðir en það fer allt saman eftir því á hvaða tíma ársins þeir eru. Ég myndi ekki vilja hætta með þá því ég held að þeir séu mjög mjög mikilvægir.


Stefán Hannesson, 16 ára, Selfoss
Hver heldur þú að sé ástæðan fyrir því að íslenska handboltalandsliðið hefur verið að ná betri árangri heldur en fótboltalandsliðið?
Fyrir það fyrsta er hægt að æfa handbolta allan ársins hring. Þeir eru bara betri við en handbolti eru bara bakhrindingar.


Fannar Máni Fjalarsson, 7 ára, Reykjavík
Hvort myndir þú vilja hafa Eið Smára á miðjunni fyrir aftan þig með landsliðinu eða við hliðina á þér í sókninni?
Annað hvort, bara hafa hann inni á vellinum.
Slapp
banner